09.12.1986
Sameinað þing: 27. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1437 í B-deild Alþingistíðinda. (1292)
Fjarvera þingmanna og ráðherra
Páll Pétursson:
Herra forseti. Ég vek athygli á því að það stendur nokkuð óvenjulega á í dag með þingstörfin. Fyrir klukkustundu var borinn til moldar fyrrv. forsætisráðherra Íslands. Útförin var gerð á vegum ríkisins og fjöldi þingmanna og þar á meðal ráðherrar voru þar viðstaddir. Það mun vera orsök þess hve fámennt er hér í salnum.
Þetta vil ég að komi fram til að fyrirbyggja allan misskilning. Það er ekki af hyskni eða trassaskap sem hæstv. ráðherrar eru hér ekki mættir eða flokksbræður fyrrv. forsrh. Emils Jónssonar.