20.10.1986
Neðri deild: 4. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 200 í B-deild Alþingistíðinda. (131)
28. mál, umboðsmaður Alþingis
Friðjón Þórðarson:
Herra forseti. Hér er að sjálfsögðu um hið merkasta mál að ræða. Málið er vel unnið og gott að allri gerð. Hlutverk umboðsmanns Alþingis á að vera að styðja menn til þess að ná rétti sínum í skiptum við stjórnvöld, koma í veg fyrir að menn séu beittir rangindum af hálfu opinberra aðila og stuðla þannig að bættri opinberri stjórnsýslu í landinu. Ekki er að efast um það að hlutverkið er hið merkasta.
Það hefur stundum verið bent á að Alþingi þyrfti að hafa betra eftirlit með þeim lögum sem það setur, hvernig þeim er framfylgt. En þarna kemur að því að rétt er að staldra ögn við. Ég er hræddur um það að ef Alþingi ætti að sinna því eftirlitshlutverki að fylgjast nákvæmlega með því að öllum þeim fjölbreyttu lögum sem það setur árlega sé framfylgt, þá hefði það ærið nóg að gera. Enda veit ég ekki að hve miklu leyti þetta er hlutverk Alþingis. Ekki þýðir fyrir okkur alþingismenn að segja við dómara hvernig eigi að skilja lög. Dómararnir ákveða það sjálfir. Þess vegna er það fyrst og fremst framkvæmdarvaldsins að sjá um að þeim lögum sem Alþingi setur sé framfylgt. Það verða allir að fylgja lögum. En það má vera að betur sé hægt að haga eftirlifi með lagaframkvæmd í landinu heldur en nú er gert.
Ég endurtek að það er göfugt hlutverk, göfugt markmið að stuðla að auknu réttaröryggi þegnanna í þjóðfélaginu, virða mannréttindi, tryggja þau og sjá um að gera alla stjórnsýslu réttlátari og virkari. En ég vil í fyrstu benda á að auðvitað kostar peninga að setja á stofn nýtt embætti. Sumir mundu segja að þetta væri viðbót við báknið. Í hvert skipti sem lög eru sett þarf að gera sér grein fyrir því að þar er oft um mikinn kostnað að ræða. Þessi ágæti ármaður Alþingis mundi auðvitað þurfa sína skrifstofu, sína fulltrúa, sitt starfslið. Og þarna hygg ég að væri kominn álitlegur kostnaðarliður svona með tíð og tíma. Á meðan gerist það að fjárveitingavaldið sér, ja, mjög knapplega fyrir því að ágætum lögum um stofnanir, sem við teljum sjálfsagðar, sé svona rétt hægt að framfylgja. Þeim er veitt fé af skornum skammti oft og tíðum, svo ekki sé meira sagt.
Þessu máli hefur verið hreyft hér oftar en einu sinni eins og hv. frummælandi gat um. Hv. framsögumaður, 2. þm. Reykn., tók svo til orða að það væri enginn sem benti mönnum á hvernig þeir eigi að ná rétti sínum, ef ég hef skilið það rétt. Þetta er auðvitað fjarri öllu lagi. En það er kannske aldrei nógu mikið að þessu gert. Ég vil aðeins nefna örfá atriði.
Þegar ég þekkti best til í dóms- og kirkjumrn. var starfandi þar upplýsingafulltrúi. Þessi upplýsingafulltrúi átti sérstaklega að sinna því að greiða götu allra manna, sem komu í ráðuneytið til þess að leita réttar síns, og beina þeim á rétta braut. Þetta var hans aðalstarf. Auk þess sem allt starfsfólk ráðuneytisins fékkst við það daginn út og daginn inn, að segja má, að leiðbeina fólki og benda því á hvernig það gæti sótt sinn rétt og varið.
Þá vil ég aðeins nefna það að einn þáttur í hlutverki sýslumanna og bæjarfógeta um allar byggðir landsins er að leiðbeina fólki. Sums staðar er þetta ákveðið í lögum, t.d. ef ólöglærður maður ætlar að reka mál sitt, þá er dómari skyldur að leiðbeina honum. Í annan stað er þetta siðferðileg skylda og ég hygg að allir almennilegir embættismenn sinni þessari skyldu að verulegu leyti. En hvernig er þá að þeim búið, t.d. hvað varðar fjárveitingar af hálfu hins opinbera? Ég ætla aðeins að nefna eitt dæmi.
Mér er kunnugt um það að nú vantar líklega allt að tíu menn til að gegna starfi löglærðra fulltrúa við embætti úti um land. Þeir bera því við að þeir fái ekki næg laun, ekki a.m.k. miðað við það sem þeir geta fengið hér á höfuðborgarsvæðinu. Þetta er eitt atriði sem gerir embættunum mjög erfitt og þungt fyrir fæti að sinna þeim skyldum sem ég hef minnst hér á.
Í öðru lagi vil ég nefna það að sá maður, sem leitar í ráðuneytið og fer þar fram á stuðning við sitt mál, getur bent á þá löggjöf sem gildir um gjafsókn og gjafvörn. Það er allvíðtæk löggjöf til aðstoðar mönnum sem ekki hafa efni á að sækja mál sitt sjálfir. Þennan rétt geta þeir fengið ef þeir hafa eitthvað til síns máls en auðvitað þarf að leggja ákveðinn dóm á málið áður.
Þá vil ég benda á það, þó að í litlu sé, að árlega var félagi lögfræðinema við Háskóla Íslands veittur nokkur fjárhagslegur styrkur til þess að annast ókeypis aðstoð við almenning. Ég held að lögfræðinemar haldi þessu starfi enn þá uppi.
Þá get ég enn nefnt að í 34. gr. laga um meðferð opinberra mála, nr. 74 frá 1974, er rætt um hlutverk lögreglumanna. Það er talið þar upp í nokkrum liðum. Skv. fyrsta lið er skylda lögreglumanna að halda uppi lögum og reglu, í öðru lagi að greiða götu manna þar sem það á við. Jafnvel lögreglumaðurinn, sem gengur um göturnar og starfar þar og er kannske í augum margra líkt og refsivöndur. Sú lagalega skylda hvílir á hans herðum að leiðbeina fólki.
Það mætti nefna mýmörg fleiri dæmi um þetta efni í löggjöf. En það er svo annað mál að e.t.v. þarf einhver að hafa eftirlit með því að þessir aðilar ræki skyldu sína. Og auðvitað eru menn yfir þá settir í embættismannakerfinu. Og enn er það svo að þó einhverjir eftirlitsmenn eigi að gegna ákveðnu starfi þá þarf kannske, ef gæta á fyllsta öryggis, að setja upp eftirlit með eftirlitsmönnum! Þannig mætti lengi telja. En ég tel mig samt sem áður ekki hafa efni á að mæla gegn þessu frv. Hér er hreyft ágætri hugmynd. En ég bendi hv. alþm. á það að ef þeir setja þetta embætti á stofn þá verða þeir að búa það sæmilega úr garði þannig að það geti gegnt hlutverki sínu að því leyti.
Þess er getið í grg. með þessu frv. að tillaga um þetta hafi verið tekin upp í frv. til nýrra stjórnarskipunarlaga í tíð Gunnars Thoroddsens forsrh. á 105. löggjafarþingi vorið 1983. Þetta mun allt saman rétt vera og ég hygg m.a.s. að stjórnarskrárnefndin hafi verið einhuga um að setja ákvæðið um umboðsmann Alþingis inn í stjórnarskrána. Þá minnir það okkur á að þetta er eitt af þeim efnum sem við þurfum að ræða í sambandi við nýja stjórnarskrá.
Og þá mætti í lokin spyrja: Hefur hæstv. ríkisstjórn og hv. alþm. misst allan áhuga á að setja landinu nýja stjórnarskrá? Hefur þeirri hugmynd verið lagt við stjóra til frambúðar?