10.12.1986
Neðri deild: 18. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1473 í B-deild Alþingistíðinda. (1314)

212. mál, virðisaukaskattur

Guðrún Agnarsdóttir:

Herra forseti. Ég vil ræða hér lítillega þetta frv. til laga um virðisaukaskatt sem er nú til 1. umr. í deildinni.

Frv. felur í sér gjörbreytingu á skattheimtu á vegum ríkisins og kæmi til með, ef yrði að lögum, að hafa víðtæk áhrif í þjóðfélaginu. Söluskattskerfið sem nú er við lýði hefur þótt gallað að ýmsu leyti, m.a. talið um of auðvelt að svíkjast undan því og einnig að gæti uppsöfnunaráhrifa í því kerfi. Þó telst það afla ríkinu um 40% tekna sinna eða um 15,5 milljarða kr., en framteljendur í því kerfi eru um 10 þúsund. Starfsmenn sem sinna skattheimtu eða öðru starfi varðandi söluskatt eru nú 35.

Virðisaukaskattur er talinn leggjast jafnar á atvinnuvegina, einkum að minna gæti uppsöfnunar á útflutningsvörur sem þá eru taldar verða samkeppnishæfari á erlendum mörkuðum. Framteljendur í því kerfi verða um helmingi fleiri, eða 22 500 og eru ætlaðar tekjur af innheimtu þessa skatts um 17,75 milljarðar, auk sérstaks tekjuauka, sem er ætlaður til kominn vegna bættrar innheimtu og mun verða um 400 milljónir. Heildartekjur af þessum skatti munu því áætlaðar um 18,15 milljarðar. Þeim mismun sem verður á innheimtu söluskatts og virðisaukaskatts, um 2,65 milljörðum, er síðan ætlað að verja til hliðarráðstafana til að draga úr áhrifum virðisaukaskattsins, með hækkun barnabóta og lífeyrisbóta, niðurgreiðslu húshitunarkostnaðar, afnámi tolla og vörugjalds af matvælum og aukinni niðurgreiðslu af búvöru.

Talið er að innheimta virðisaukaskatts sé skilvirkari en innheimta söluskatts. En sú innheimta skeður ekki af sjálfu sér því að jafnframt því að áætlað er að koma á virðisaukaskatti þarf að auka starfslið skattheimtunnar af þessu tilefni um helming, úr 35 í 70 starfsmenn. Menn telja að erfiðara muni reynast að svíkjast undan virðisaukaskatti en söluskatti, en engar sönnur eru fyrir því að svo verði. Virðisaukaskattur var fyrst áætlaður um 25% en skattprósentan var síðan lækkuð úr 25 í 24% eftir ábendingar bæði frá Þjóðhagsstofnun og fulltrúum atvinnulífsins. Stærri hluti virðisaukaskattsins er innheimtur beint af einkaneyslunni en hingað til hefur verið um söluskattinn. En um 85% neyslunnar eru skattlögð samkvæmt virðisaukaskatti miðað við 72% skattlagningu í núverandi söluskattskerfi.

Skattlagning aðfanga og atvinnuvegafjárfestingar hverfur hins vegar að mestu, þannig að um 3% af skattinum verða innheimt af aðföngum í stað 14% nú. Þetta er því fyrst og fremst skattur sem neytendur greiða, þ.e. einstaklingarnir og heimilin, en ekki atvinnuvegirnir eða fyrirtækin.

Stærsti gallinn við virðisaukaskattinn, að mínu mati, er sá að hann leggst á ýmsar neysluvörur almennings sem nú eru undanþegnar söluskatti, t.d. matvæli. Þetta mun koma sér afar illa fyrir margar fjölskyldur og einstaklinga í landinu, einkum og ekki síst þá sem nú eiga að lifa af 26 500 kr. á mánuði samkvæmt nýjustu kjarasamningum.

Meðal þeirra hliðarráðstafana sem nefndar hafa verið og framkvæma á fyrir það umframfé sem fæst með virðisaukaskatti er niðurgreiðsla búvara, a.m.k. fyrst í stað. Öll önnur matvæli en búvörur munu hækka um 14%. Meðaltalshækkun á matvælum, þegar tekið er tillit til niðurgreiðslu á búvörum, verður samt 10,5%. Það vekur sannarlega áhyggjur vegna þeirra einstaklinga og fjölskyldna sem lægst laun hafa og þyngsta framfærslu. Talið er enn fremur að verðlag á annarri einkaneyslu lækki lítillega þannig að hækkun framfærsluvísitölu mun verða um 1,2% þegar á heildina er litið. Heildarframfærslubyrði er talin hækka um u.þ.b. 0,5% að meðaltali hjá fjölskyldum en ætlunin er að koma til móts við barnafjölskyldur með hækkun barnabóta.

Hliðarráðstafanir sem ætlað er að fylgi þessu frv. eru að sjálfsögðu millifærslur á vegum ríkisins. Sama máli gegnir um breytingu yfir í virðisaukaskatt frá söluskatti. Hún er líka millifærsla á skattheimtu og skattbyrði á vegum ríkisins, þ.e. skattheimta er þyngd á einstaklinginn og t.d. einstæða foreldra.

Breyting frá söluskattskerfi yfir í virðisaukaskatt er sannarlega umfangsmikil aðgerð sem menn hafa skiptar skoðanir á, jafnt innan stjórnarflokkanna sem utan þeirra. Málið þarf því að fá verulega ítarlega umfjöllun og góðan tíma. Margir telja að slíkt kerfi eigi ekkert erindi með svo lítilli þjóð sem okkar jafnvel þó að það nýtist vel meðal annarra stærri þjóða.

Kvennalistinn getur ekki stutt þetta frv. í núverandi mynd. Og við teljum reyndar að á því þurfi að gera svo gagngerar grundvallarbreytingar áður en við gætum samþykkt það að til þess vinnist vart tími á þessu þingi sem er álitið verða stutt og er þar að auki komið að þinglokum fyrir jólahlé. Við áskiljum okkur að sjálfsögðu rétt til að gaumgæfa málið við nánari umfjöllun þess í nefnd, svo og allar breytingar sem fram kunna að koma. En við höfum miklar efasemdir um málið í núverandi búningi og þá einkum vegna þess sem ég hef áður talið, þ.e. um er að ræða aukinn skatt á láglaunafólk og einstaklingana. Þær hliðarráðstafanir, sem koma eiga til móts við aukna skattbyrði einstaklinganna og fjölskyldnanna og draga úr áhrifum skattsins, eru engan veginn tryggðar, né heldur er fyllilega ljóst að þær dragi nægilega úr áhrifum hans.

Ekki virðast þau rök sem lögð eru fram til réttlætingar virðisaukaskatti vera nægilega trygg eða veigamikil til að vega upp á móti þessum stóra galla. Það er t.d. ekki víst að þetta kerfi leiði til betri innheimtu þrátt fyrir það að frumvarpshöfundar telji kerfið hafa sjálfvirkt innheimtuöryggi. Og fjölgun skattheimtumanna um helming, úr 35 í 70, gæti fullt eins vel nýst til að endurskoða og endurbæta núverandi söluskattskerfi, fremur en að gera þessar grundvallarbreytingar sem hér eru áformaðar.

Kvennalistinn hefur eins og aðrir stjórnarandstöðuflokkar ekki haft tækifæri til að fylgjast með undirbúningi og gerð þessa umfangsmikla máls og hefur því haft lítinn tíma til að gera sér grein fyrir öllum áhrifum sem þessi viðamikla kerfisbreyting gæti haft. Ég vil átelja þessi vinnubrögð, og hefði verið lýðræðislegra og því réttlátara, ekki síður en skynsamlegra, að hafa stjórnarandstöðuna með í ráðum í svo veigamiklu máli. Við munum því taka okkur eðlilegan tíma til umhugsunar um þetta mál, enda getur stjórnin ekki ætlað sér að kasta höndum til jafnróttækra breytinga og þetta frv. boðar. Hún hlýtur að vilja einhug þm. ef til slíkra breytinga kæmi.

Ég vil endurtaka það að við álítum ekki að þetta frv. hafi neinn möguleika á því að komast í gegn á þessu þingi, heldur hljóti það að þurfa að bíða næsta þings vegna þess hve seint það kemur fram og hve mikils tíma það þarfnast til umfjöllunar áður en möguleiki væri á að samþykkja þessa róttæku breytingu.