11.12.1986
Sameinað þing: 28. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1489 í B-deild Alþingistíðinda. (1320)
222. mál, kaup ríkisins á Borgarspítalanum
Fyrirspyrjandi (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Á þskj. 237 hef ég borið fram fsp. um hugmyndir ríkisins um kaup á Borgarspítalanum. Fsp. var borin fram strax og spurðist að ætlunin væri að selja ríkinu Borgarspítalann. Eftir það hafa átt sér stað hörð átök um málið innan Sjálfstfl. Starfslið spítalans hefur mótmælt harðlega og haldnir hafa verið neyðarfundir hver á fætur öðrum í Sjálfstfl.
Ekki er ljóst hvernig málið verður afgreitt, stefnan liggur ekki fyrir, en hér er á ferðinni gömul stefna Framsfl. í Reykjavík sem Davíð Oddsson er að pína Sjálfstfl. til að framkvæma.
Ég er á móti sölu Borgarspítalans úr hendi Reykvíkinga af eftirfarandi ástæðum:
1. Reykjavík, höfuðborg landsins, á að hafa metnað til þess að reka sjálfstætt sjúkrahús.
2. Borgarspítalinn hefur haft góð áhrif á þróun Landspítalans á undanförnum áratugum. Það er nauðsynlegt fyrir heilbrigðisyfirvöld að geta metið heilbrigðisþjónustu í Reykjavík á tveimur myndarlegum sjúkrahúsum.
3. Því hefur verið haldið fram að Borgarspítalinn sé illa rekinn. Vafalaust má þar margt betur fara en hallinn á rekstri spítalans fyrstu 9 mánuði ársins nam 19,6% af rekstrarútgjöldum, en halli annarra daggjaldaspítala var að meðaltali um 19,4%. Borgarspítalinn er alls ekki lakar rekinn en aðrir spítalar. Hitt er ljóst að mjög hefur sigið á ógæfuhlið í þessu efni á undanförnum árum. Hallinn 1984 var 5%, 1985 16%, 1986 tæp 20%. Það er einnig ljóst að daggjaldakerfið hefur gengið sér til húðar.
4. Því er haldið fram að tekin hafi verið ákvörðun um að færa alla daggjaldaspítala á föst fjárlög. Það er rangt. Alþingi hefur valdið og því hefur ekki verið tekin ákvörðun um að flytja daggjaldaspítala yfir á föst fjárlög. Ég tel eðlilegast að fresta ákvörðun um fjármögnun spítalanna og að undirbúa kerfisbreytingu betur en gert hefur verið í tíð núv. hæstv. heilbrmrh.
5. Því er haldið fram að yfirtaka ríkisins á Borgarspítalanum sé forsenda fyrir betri nýtingu fjármuna heilbrigðisþjónustunnar. Þetta er rangt. Heilbrmrh. hefur allt vald til þess að ákveða verkaskiptingu sjúkrahúsanna í Reykjavík samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu.
6. Við Borgarspítalann hefur risið B-álma Borgarspítalans sem er byggð fyrir aldraða. Með sölu Borgarspítalans í hendur ríkisins er sú þjónusta í hættu og séu skiptar skoðanir um eignarhald sjúkrahúsanna almennt eru enn skiptari skoðanir um að ríkið reki öldrunar- og hjúkrunardeildir við sjúkrahúsin. Það hefur langoftast verið verkefni sveitarfélaganna að sinna þessum málum.
7. Í Borgarspítalanum er starfrækt slysadeild fyrir allt Reykjavíkursvæðið. Ég vil spyrja hæstv. heilbrmrh.: Telur hún rétt að ríkið reki slíka slysadeild?
8. Því er haldið fram að því hafi verið frestað í fyrra að flytja daggjaldaspítalana á föst fjárlög og þess vegna verði það að gerast í ár. Einnig það er rangt vegna þess að málið hefur verið illa undirbúið eða ekkert undirbúið í tíð hæstv. núv. heilbrmrh.
9. Bent er á að áður hafi sjúkrahús verið flutt á föst fjárlög. Það er rétt en það var þá gert með samkomulagi við forráðamenn spítalanna en ekki í stríði við þá eins og nú. Mín skoðun er því sú að Alþingi eigi að hafna því að flytja spítalana nú á þessu þingi á föst fjárlög. Í annan stað eigi að undirbúa kerfisbreytinguna betur og taka ákvarðanir fyrir þarnæstu áramót.
Herra forseti. Sjálfstfl. hefur sagst vera valddreifingarflokkur. Mikið ræðir hann um sjálfstæði sveitarfélaganna. Niðurstaðan í verki er sú að Sjálfstfl. er miðstýringar- og valdaeinokunarflokkur. Það er hinn pólitíski kjarni þessa máls. Borgin hefur ekki óskað eftir því að selja Borgarspítalann. Það hefur hvergi verið samþykkt í stofnunum Reykjavíkurborgar. Davíð Oddsson borgarstjóri hefur ákveðið að selja Borgarspítalann en hann er ekki Reykjavík þó hann haldi það sjálfur.
Síðast en ekki síst er sala Borgarspítalans lakari kostur að mínu mati frá sjónarmiði heilbrigðisyfirvalda því á engan hátt er hægt að halda því fram að heilbrigðisþjónustan batni þegar ríkið kaupir Borgarspítalann og það eru þau rök, herra forseti, ein sem heilbrmrh. á að taka mark á. Svo virðist hins vegar sem tillitssemi ráðherrans við kröfur borgarstjórans um valdaeinokun sé meiri en umhyggjan fyrir heilbrigðisþjónustunni og það er slæmt