11.12.1986
Sameinað þing: 28. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1495 í B-deild Alþingistíðinda. (1327)

222. mál, kaup ríkisins á Borgarspítalanum

Guðrún Helgadóttir:

Herra forseti. Ég skal reyna að hafa athugasemdina stutta og aðeins bæta nokkrum punktum við það sem áður hefur verið sagt.

Ég lýsi andstöðu minni við að hlaupið sé að þessu máli eins og til stendur og óska eftir því að tími verði tekinn í að athuga hvernig hagræða megi þessum hlutum. Undirbúningur þessa máls hefur verið forkastanlegur. Dæmi um það er að málið var ekki rætt á borgarráðsfundum áður en borgarráðsmenn sáu það í blöðunum. Verkhagræðing og verkaskipting er í lagi milli Borgarspítala og Landspítala. Nægir að nefna að Landspítalinn annast kvensjúkdómalækningar, fæðingarhjálp, hjartaskurðlækningar o.fl., Borgarspítalinn annast slysadeild, heilaskurðlækningar o.fl. Á Landakoti höfum við ágætis augnlækningadeild. Sem dæmi um ágætt samstarf milli þessara tveggja stofnana, Landspítala og Borgarspítala, er bráðaþjónusta fyrir geðsjúka sem hófst 1983 og hefur verið til mestu fyrirmyndar og valdið gerbyltingu í þeim efnum hér í bæ.

Á Borgarspítalanum hafa verið unnin vísindaafrek, sérstaklega varðandi slysalækningar, sem vakið hafa athygli ekki einungis hérlendis heldur einnig erlendis. Sem dæmi um skjót úrræði og liðlega stjórnun er deild sú er annast nú ráðgjöf varðandi eyðni sem Borgarspítalinn hafði frumkvæði um. Mér er til efs að það hefði getað átt sér stað ef um það hefði orðið að fjalla í stærri einingu.

Herra forseti. Borgin vill losna við Borgarspítalann. Það kostar auðvitað peninga að reka Borgarspítalann. Vill ekki borgin líka selja þjónustuíbúðir fyrir aldraða og væntanlega þá hina öldruðu með? Ráðherrann sagði: Fjármagnsábyrgð og rekstrarábyrgð fari saman. Ég spyr hæstv. ráðh.: Er starfsfólk Borgarspítalans ekki hvort tveggja í senn Reykvíkingar og Íslendingar?