11.12.1986
Sameinað þing: 29. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1507 í B-deild Alþingistíðinda. (1345)
185. mál, kaupleiguíbúðir
Halldór Blöndal:
Herra forseti. Hér höfum við fyrir framan okkur eina af mestu sýndarmennskuþingsályktunartillögum Alþfl. sem er dæmigerð fyrir þau stjörnuhröp sem hv. þm., formaður Sjálfstfl., stendur nú í. Hann horfir mest til stjarnanna og les framtíð sína í gegnum þær eins og margir af mestu mönnum mannkynssögunnar hafa gert í gegnum aldirnar. (Gripið fram í: Formaður Alþfl.?) Formaður Alþfl. Hafi ég mismælt mig bið ég afsökunar á því. Það má vera að hann sé orðinn svo mikill að manni fipist - jafnvel þegar maður ætlar að ávarpa hann og verði að leggja sig allan fram og æfa sig á kvöldin - í návist hins mikla manns, sem les framtíð sína og þjóðarinnar í gegn um stjörnurnar og líkir sér við mestu stjórnmálaskörunga sem fæðst hafa. Hann þykist nú kominn í klæði Ólafs Thors og hefur klætt Jón Sigurðsson í föt Bjarna Benediktssonar og er ég hræddur um að þau verði nokkuð rúm á efsta manni á lista Alþfl., satt að segja, svo ekki sé meira sagt.
Nú hefur sá hinn mikli maður látið varaformann sinn - sem hann hefur raunar lýst yfir að megi ekki verða forustumaður í Alþfl. heldur toppkratinn Jón Sigurðsson - flytja eina till. til þál. Og 1. liðurinn byrjar svo: „Alþingi ályktar að fela félmrh. að hefja nú þegar undirbúning að löggjöf . . .“ og svo framvegis. Og nú langar mig að spyrja varaformann Alþfl. Þessi þáltill. hefur lengi verið í smíðum. Þetta var mikið baráttumál Alþfl. fyrir síðustu sveitarstjórnarkosningar. Nú hefur heilt sumar liðið síðan og nú hefur sá snjalli maður, Jóns Sigurðsson, komið til liðs við Alþfl. Hvernig stendur á því að þm. Alþfl. hafa ekki notað tímann frá því í vor til þess að standa við loforðin þá við fólkið, sem þeir þykjast hafa unnið mikið fylgi hjá, með því að semja frv. um það efni sem hér er fjallað um? Hvernig stendur á því að þm. Alþfl. eru að tala um skattamál? Ef þeir hreyfa þeim á þingi er það annaðhvort í formi þáltill. eða brtt. við fjárlög þó að þeir viti það að slíkt hefur engin áhrif á skattalög því að slík mál á að flytja í deildum en ekki Sþ. Hvernig stendur á því að þessi hv. þm., varaformaður Alþfl., svíkur umbjóðendur sína frá því í vor, frá síðasta þingi, svíkur þá sveitarstjórnarmenn sem gengu til liðs við Alþfl. í vor, með því, nú þegar komið er fram að jólum, að hafa ekki lagt fram frv. í anda þeirrar húsnæðisstefnu sem Alþfl. barðist fyrir á síðastliðnu vori. Hvernig skyldi standa á því? Það væri fróðlegt að fá svar við því.
Það var einnig mjög athyglisvert að hlusta á varaformann Alþfl. í ljósi þess að formaður Alþfl. les framtíð Alþfl. í gegnum stjörnurnar bæði til fortíðar og framtíðar. Þá kemur hin mikla tímamótaályktun hjá varaformanninum að þessi þáltill. fjalli um það að leggja niður verkamannabústaðina. Þetta á að vera fyrsta skrefið til þess að leggja niður verkamannabústaðina. Þetta er á sama tíma og formaður Alþfl. segir í einu af tískublöðum þjóðarinnar í dag að Jón Baldvinsson, fyrrum formaður Alþfl., hafi vitjað nafns og að hann sé óholdgetinn arftaki Jóns Baldvinssonar sem var einn þeirra manna sem börðust mest fyrir því að koma verkamannabústaðakerfinu í lög á Íslandi. Og ég veit ekki betur en að hér vestur í bæ sé stytta af gömlum forustumanni Alþfl., Héðni Valdimarssyni, - sem fór að vísu sömu leið og Hannibal, hann gekk úr Alþfl. og yfir í Sameiningarflokk alþýðu, sósíalistaflokkinn, en entist ekki aldur til þess að ljúka hringferðinni eins og Hannibal - einmitt í verkamannabústaðahverfinu miðju til að minna á þá forustu sem hann hafði í þessum málum. Ég man ekki eftir því að Alþfl. hafi átt fegurri rós í sínu hnappagati á liðnum árum og áratugum en einmitt þessa verkamannabústaði sem varaformaður Alþfl. nú ætlar að leggja niður. Og af hverju? Af hverju á að leggja þá niður? Það er vegna þess að varaformaður Alþfl. segir að sá ljóður sé á ráði verkamannabústaðanna að menn þurfi að leggja fram fé þegar þeir komi inn í þær íbúðir en kosturinn við kaupleiguíbúðir Alþfl. sé sá að ungt fólk eða gamalt eigi að geta komið inn í íbúð, nýja eða gamla eftir atvikum, án þess að greiða eina einustu krónu.
Hvert er svo framhaldsvers varaformanns Alþfl. ef svo skyldi fara að sumar af þessum íbúðum yrðu byggðar í gegnum Byggingarsjóð ríkisins? Það á ekki aðeins að láta þær sitja fyrir með því að láta þá sem fá 20% framlag úr bæjarsjóðum fá 80% úr Byggingarsjóði ríkisins á móti 70% hjá öðrum heldur á að fækka almennum lánveitingum úr Byggingarsjóði ríkisins um eina á sama tíma og veitt er lán til einnar kaupleiguíbúðar. Það er ekki nóg með það að varaformaður Alþfl, vilji veita þeim sem fá kaupleiguíbúðirnar í gegnum Byggingarsjóð ríkisins 10% hærra lán en aðrir eiga að fá. Það er ekki aðeins að hann vilji skattleggja borgarana í því sveitarfélagi sem í hlut á, með því að þeir eigi að leggja fram 600 þús. kr. á íbúð, í þriggja millj. kr. íbúð, skattleggja hina venjulegu borgara til þess að standa undir því fé, vaxtalausu og afborgunarlausu, heldur felst það í tillögum Alþfl. að það eigi að takmarka fjölda hinna, það eigi að setja á þá kvóta. Um leið og ein kaupleiguíbúð er byggð í gegnum hið almenna kerfi segir varaformaður Alþfl. að það eigi að fækka þeim íbúðum sem aðrir eiga að fá lán til. Það er ekki nóg með það að það eigi með þessum hætti að mismuna mönnum í lánafyrirgreiðslu heldur á beinlínis að níðast á öðrum með því að draga við þá lánveitingarnar, ekki aðeins í fjárhæð heldur líka í tíma. Þetta er mesta ójafnaðarfrumvarp sem lagt hefur verið fram á þessu þingi svo langt ég man.
Ég bið afsökunar, mér fannst að Alþfl. hefði lagt fram frv., en auðvitað er þetta þáltill. af því að það er ábyrgðarminnst. Það er ábyrgðarminnst og þess vegna er þetta þáltill. Það hefði verið frv., ef hugur hefði fylgt máli og ef Alþfl. hefði ætlað að framkvæma þetta, ef formaður Alþfl. hefur lesið það rétt í stjörnurnar að hann eigi eftir að verða forsætisráðherra, ef hann hefur hugsað sér að framkvæma þetta þegar hann verður stjörnuskinsforsætisráðherrann. Er það ekki einhvern veginn svoleiðis sem maður á að segja: stjörnuskinsforsætisráðherra. Aðrir láta sér nægja að guma af því að þeir hafi verið forsætisráðherrar í fortíðinni. En það er gott að fá inn á þing einn sem gumar af því að verða það í framtíðinni. Það er nú út af fyrir sig tilbreyting.
Þeir segja í þessari till. - það er gaman að spyrja, ég sá að formaður Alþfl. kvaddi sér hljóðs - . „Ríkissjóður veiti sveitarfélögum allt að 250 millj. kr. lán árlega í tvö ár.“ Þýðir þetta, formaður Alþfl., að á hverju einasta ári eigi ríkissjóður að veita sveitarfélögunum tveggja ára lán? Hvað þýðir það þegar stendur að ríkissjóður eigi að veita sveitarfélögunum árlega lán í tvö ár? Hvað þýðir það? Bara til að flýta fyrir. Varaformaður Alþfl., hvað þýðir það þegar stendur í þessari till.: Ríkissjóður veiti sveitarfélögum allt að 250 millj. kr. lán árlega í tvö ár gegnum Jöfnunarsjóð sveitarfélaga o.s.frv.? Þýðir þetta að lánin eigi að vera í tvö ár og að það eigi að vera svona áframhaldandi? (Gripið fram í.) Ég get lesið þetta áfram. Það fæst ekki svar, það fæst ekki svar um það. Þm. verður engu nær þó að hann lesi grg. því þar stendur líka „árlega í tvö ár“. En hvorki formaður Alþfl. né varaformaður treysta sér til þess að svara hvað „árlega í tvö ár“ þýðir. Það er mikill skaði að fyrrv. forstöðumaður Þjóðhagsstofnunar skuli ekki vera hér inni svo að hægt sé að spyrja hann hvað hann hafi átt við þegar hann setti þetta niður á pappír.
Ég vil líka spyrja um annað. Það er sagt hér að menn eigi að geta búið í íbúðunum svo lengi sem þeim sýnist þannig, að sveitarfélögin leggi fram allt að 20%, 15-20% af íbúðarverðinu, vaxta- og afborgunarlaust. Síðan ef viðkomandi sýnist að vilja flytja inn í íbúðina á sveitarfélagið að lána þetta til allt að 30 ára til viðbótar. Viðkomandi er kannske búinn að búa í íbúðinni í 20-30 ár vaxtalaust og þá á að lána það til allt að 30 ára til viðbótar. Og svo stendur hér - og nú langar mig til að spyrja: Er meiningin ef menn vilja síðar kaupa íbúðina að þá verði reiknaðir vextir af þessu láni þann tíma sem viðkomandi hefur ekki borgað afborganir né vexti af íbúðinni. Ég spyr formann Alþfl.: Segjum svo að maður hafi búið í íbúð af þessu tagi í tíu ár. Þá segi hann borginni að hann vilji kaupa íbúðina. Er þá hugmyndin sú að hann eigi að greiða vexti af íbúðinni og vaxtavexti þessi tíu ár sem hann hefur verið þar? Það væri mjög fróðlegt að fá svar við því. Formaður Alþfl. svarar ekki, en varaformaður? Er hægt að segja manni það núna eða þurfa menn að fara upp í stólinn til að svara? - Merkti hringingin að tíminn sé búinn? (Forseti: Já, tíminn er vel búinn.) Ég biðst afsökunar á því ef ég hef reynt á þolinmæði forseta.