11.12.1986
Neðri deild: 19. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1511 í B-deild Alþingistíðinda. (1349)
233. mál, tekjustofnar sveitarfélaga
Svavar Gestsson:
Herra forseti. Það hefur legið fyrir þinginu um skeið frv. til l. um breytingu á lögum um tekju- og eignarskatt sem byggði á tilteknum forsendum varðandi verðlags- og launaþróun milli áranna 1985 og 1986 annars vegar og 1986 og 1987 hins vegar. Í frv. var gert ráð fyrir að laun breyttust milli áranna 1985 og 1986 um 31% og laun breyttust milli áranna 1986 og 1987 um 15%.
Það frv. sem hér liggur fyrir byggist á sömu forsendum. Í fjh.- og viðskn. Nd. í morgun lögðu fulltrúar ríkisstjórnarinnar fram tillögur sem breyta þessum forsendum í veigamiklum atriðum. Þar er gert ráð fyrir að laun á milli áranna 1985 og 1986 hækki um 38% og að laun milli áranna 1986 og 1987 hækki um 18% en ekki 15%. Mér sýnist einboðið að ef á að taka tillit til þessara sjónarmiða við álagningu tekjuskatts á árinu 1987 hljóti það einnig að gerast varðandi álagningu útsvars á því ári. Hæstv. félmrh. mælti fyrir þessu máli að mér heyrðist óbreyttu og ég inni hann eftir því hvort það er ætlun ríkisstjórnarinnar að taka tillit til þessara breyttu viðhorfa við álagningu sveitarfélaganna einnig á árinu 1987.
Samkvæmt þeim upplýsingum sem við fengum í fjh.- og viðskn. Nd. í morgun mundu álagningarákvæði eins og þau eru í óbreyttu frv. um tekjustofna sveitarfélaga hækka skatta á næsta ári um 500-600 millj. kr., hvorki meira né minna, ef ekki yrði að gert. Þess vegna var það niðurstaða fjmrh. að leggja fyrir sína embættismenn að koma með tillögur um breytingar frá upphaflegu frv. um tekjuskatt sem höfðu í för með sér að þessi hækkun upp á 500-600 millj. kr. á tekjusköttum ríkisins kæmi ekki til framkvæmda.
Getur hugsast, herra forseti, að þessi veigamikla breyting á forsendum ríkisfjármálanna fyrir árin 1986 til 1987 hafi ekki borist til eyrna hæstv. félmrh. og málið hafi ekki fengið meðferð í Framsfl., öðrum stjórnarflokknum, eða hverju sætir að hæstv. félmrh. mælir fyrir óbreyttu frv. um tekjustofna sveitarfélaga þrátt fyrir þessar veigamiklu breytingar sem hafa orðið á forsendum fjárlaga fyrir árið 1987.
Í öðru lagi vil ég minna á að það hefur farið fram endurskoðun á lögum um tekjustofna sveitarfélaga sem tekur bæði til útsvars, fasteignagjalda og aðstöðugjalda að því er ég best veit. Ég vil sérstaklega inna eftir því hvar sú endurskoðun á tekjustofnum sveitarfélaganna er á vegi stödd. Hæstv. félmrh. greindi frá því fyrir nokkrum mánuðum að þeirri endurskoðun væri að ljúka. Ég sé hins vegar ekki og hef ekki heyrt frá honum við þessa umræðu neinar upplýsingar um hvar sú heildarendurskoðun er og ég óska eftir upplýsingum um það mál og hvort hæstv. félmrh. hyggst leggja fyrir þingið nýtt frv. um endurskoðun á lögum um tekjustofna sveitarfélaga og hvort það er ætlun ríkisstjórnarinnar að það mál verði afgreitt á yfirstandandi þingi.