11.12.1986
Neðri deild: 19. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1538 í B-deild Alþingistíðinda. (1362)
198. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Flm. (Jóhanna Sigurðardóttir):
Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til l. um breytingu á lögum um tekjuskatt og eignarskatt, en flm. ásamt mér eru hv. þm. Guðmundur H. Garðarsson, Guðrún Helgadóttir, Jón Baldvin Hannibalsson, Kristín Halldórsdóttir, Guðmundur J. Guðmundsson og Guðmundur Bjarnason. Ég vek athygli á því, herra forseti, að hér er um að ræða þm. úr öllum flokkum.
Megintilgangur frv. er að hagkvæm og fljótvirk leið verði valin til að fá úttekt á raunverulegri tekjuskiptingu í þjóðfélaginu. Í frv. er lagt til að kjararannsóknarnefnd hafi áhrif á hvort og þá með hvaða hætti óskað yrði ítarlegri upplýsinga um launagreiðslur og vinnutíma á launaseðlum en nú er gert og í öðru lagi að kjararannsóknarnefnd hafi aðgang að skattskýrslum til kjararannsókna.
Áætlanadeild Framkvæmdastofnunar ríkisins hefur um nokkur undanfarin ár gefið út rit um vinnumarkaðinn þar sem byggt er á sérstakri úrvinnslu upplýsinga úr skattframtölum. Í þessu riti koma fram upplýsingar um mannafla, meðallaun á vinnumarkaði og atvinnuþátttöku. Eins og nú er er einungis unnt að fá úr skattframtölum upplýsingar um heildarlaunagreiðslur en ekki sundurgreindar upplýsingar um laun fyrir dagvinnu og yfirvinnu, bónus, greiðslur fyrir vaktavinnu, greiðslur fyrir ákvæðisvinnu, greiðslur í veikinda- og slysatilvikum eða sérstakar greiðslur sem ekki falla undir neitt af framantöldu, svo sem yfirborganir og þess háttar.
Til að hægt sé að nýta skattframtölin betur til kjararannsókna og fá fram gleggri upplýsingar um raunverulega tekjuskiptingu í landinu er mikilvægt að hægt sé að fá fram og upplýsa hlutfall hinna ýmsu þátta í launakjörum og tekjum. Með því móti er hægt að ná fram betri upplýsingum um hvaða þáttur launakjara sé mest ákvarðandi um launakjör hverrar starfsstéttar, svo sem dagvinnutaxtar, yfirvinnutaxtar, afkastahvetjandi launataxtar, yfirborganir og aðrar greiðslur, svo sem bílastyrkir, hlunnindi o.fl.
Með þeirri breytingu sem lögð er til í 1. gr. þessa frv. opnast nýir möguleikar til kjararannsókna og upplýsinga um tekjuskiptingu og launakjör. Þó að kjararannsóknir með úrvinnslu úr skattframtölum hafi vissulega sína galla er ljóst að unnt er að afla mun ítarlegri upplýsinga um tekjur einstaklinga og uppruna þeirra en nú er gert og er það m.a. tilgangur þeirrar breytinga sem hér eru lagðar til. Þessar upplýsingar gætu orðið mjög þýðingarmiklar fyrir hið opinbera í öllum ákvarðanatökum er lúta að því að bæta kjör hinna verst settu. Jafnframt er ljóst að upplýsingar þær sem hér um ræðir eru mjög mikils virði fyrir samtök vinnumarkaðarins til að upplýsa samsetningu launatekna og vinnutíma í einstökum greinum atvinnulífsins.
Ég tel ekki ástæðu, herra forseti, til að hafa fleiri orð um þetta frv., sem hér liggur fyrir, en legg til að að lokinni þessari umræðu verði frv. vísað til 2. umr. og til hv. fjh.- og viðskn.
Umræðu (atkvæðagreiðslu) frestað.