12.12.1986
Sameinað þing: 30. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1594 í B-deild Alþingistíðinda. (1374)

1. mál, fjárlög 1987

Menntamálaráðherra (Sverrir Hermannsson):

Herra forseti. Ég get verið stuttorður um Núpsskóla. Það voru gefnar skýrar yfirlýsingar um að engin ákvörðun hefði verið tekin um að loka honum endanlega. Það var brugðið á það ráð að loka honum í eitt ár og nota rekstursfjármunina til þess að gera hann þannig úr garði að hann væri íbúðarhæfur, en heilbrigðisnefnd sýslunnar tilkynnti mér í bréfi þá ákvörðun sína að skólanum yrði lokað vegna þess hvernig heimavistin var úr garði gerð. Þannig að hér var reyndar ekki um einhliða ákvarðanir mínar að tefla í þessu falli. Ég lýsti því yfir að að ári, þegar viðgerð hefði farið fram og úttekt gerð, ef skólinn væri þann veg búinn að íbúðarhæfur teldist, myndi verða athugað hvort hann hefði starfsgrundvöll. En við vitum að héraðsskólarnir, eins og til að mynda á Laugarvatni og víðar, virðast vera að syngja sitt síðasta. Það er þó enn góð aðsókn að Heiðarskóla t.d., svo ég nefni það, en í Laugarvatnsskólanum hefur fækkað úr 130-140 nemendum fyrir 10 árum í 38 nú, ef ég man þá tölu rétt. Auðvitað er það alltaf örðugleikum háð, sársaukafullt og kemur hart niður á sveitum þar sem þessir skólar hafa starfað þegar og ef til þess ráðs þarf að grípa að loka þeim. Þetta er sem sagt leiðrétt og formaður fjvn. tók það fram og enginn vafi á því að það hefur hann líka gert í fjvn. þannig að þessar upplýsingar lágu allar saman fyrir.

Vegna Ísafjarðar er þess að geta að það liggur auðvitað einnig fyrir, og þetta vita allir fjárveitinganefndarmenn nákvæmlega að aukafjárveiting með þeim hætti að 3 millj. sem reiddar verða af hendi fyrir 15. jan. getur að líta á 4. síðu í brtt. meiri hl. og aths. á bls. 234 í fjárlagafrv. þessu að lútandi vegna Laugaskóla, Sælingsdalslaugar, í Dalasýslu 2,5 millj. og 3 millj. vegna Ísafjarðar til greiðslu á skuldum vegna byggingarframkvæmda skóla. Viðskiptabanki Ísafjarðarkaupstaðar hljóp undir bagga með kaupstaðnum um nokkurra mánaða skeið eða þar til þessir fjármunir, 3 millj. kr. verða af hendi reiddar. Það er frá þessu að segja. Ég dreg við mig að setja á lengri tölu um Ísafjarðarmálin núna. Ég held að það mundi ekkert greiða fyrir. Ég þarf að hitta formann fjvn. sérstaklega og kannske fleiri úr fjvn. til þess að ræða þau mál. Satt best að segja hefur ekki verið þann veg á þeim haldið að mönnum hafi líkað. Ég held ég kveði ekki of fast að orði þó ég haldi því fram. En við skulum vona að úr rætist. Ég hef þess vegna ekki og vil ekki hafa fleiri orð um íþróttahús eða tengibyggingar eða annað sem að þessu lýtur.

En svo er það Hólmavík, félagsheimilið. Ég á von á því að þessa dagana verði undirritaður samningur um bygginguna. En þeir fá ekkert að fara af stað, og enginn, nema gerður sé bindandi samningur um framkvæmdir. Það stóð í nokkru stappi um gerð þessa húss. Menn voru ekki á eitt sáttir um þetta en ég sá enga ástæðu til þess að vera að hengja sig í einhver formsatriði, eins og þau að þarna mættu ekki vera búningsklefar í þessu félagsheimili vegna íþróttaaðstöðu sem hugsað er að tengja þessari byggingu þegar fram í sækir, þannig að ég hjó mjög fljótlega á þennan hnút og það truflaði aðeins í bili hugmyndir sveitarstjórans um byggingu gistihúss í tengslum við þetta félagsheimili einnegin, en þær eru nú líka úr sögunni og samningur verður undirritaður á næstunni og þá geta þeir auðvitað og sjálfsagt mál að þeir fái að vinna fyrir þá peninga sem þeim hafa áskotnast, m.a. með drengilegum framlögum sjómanna á staðnum og annarra sem láta sig þetta mál miklu varða sem von er til.

Ég vona að ég hafi að mestu þá mætt óskum hv. þm. vegna fsp. hans.