13.12.1986
Sameinað þing: 31. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1677 í B-deild Alþingistíðinda. (1397)

1. mál, fjárlög 1987

Samgönguráðherra (Matthías Bjarnason):

Fjárvöntun í hafnir landsins skiptir tugum ef ekki hundruðum milljóna, þær nauðsynlegustu. Áætlun um höfn á Blönduósi framreiknuð er upp á 337 millj. kr., 1. áfanginn upp á 91 millj. kr. Ég sé ekki að 4 millj. kr. gagni þessari hafnargerð á nokkurn hátt og tel fjármagninu betur varið til ýmissa annarra hafna sem eru í fjársvelti. Því segi ég nei.