13.12.1986
Sameinað þing: 31. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1678 í B-deild Alþingistíðinda. (1401)

1. mál, fjárlög 1987

Guðmundur J. Guðmundsson:

Herra forseti. Hafnir á Íslandi eru víða brennandi vandamál. Ástandið er víða þannig að það liggur við að þýðingarmiklar hafnir lokist og þær fá ekki viðunandi fé til að halda eðlilegri útgerð og atvinnulíf á viðkomandi byggðarlögum er í hreinni hættu þótt fjárfestingar séu upp á hundruð milljóna. Ég er á móti því að einstakir áhrifamiklir þm. úr ákveðnu kjördæmi geti verið að pota inn sér til áhrifaauka nokkrum milljónum í höfn sem kostar hundruð milljóna. Ég segi afgerandi nei og er hneykslaður á þessari tillögu.