21.10.1986
Sameinað þing: 5. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 208 í B-deild Alþingistíðinda. (142)
35. mál, kjarnorkuverið í Dounreay í Skotlandi
Fyrirspyrjandi (Sigríður Dúna Kristmundsdóttir):
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. utanrrh. svörin, en mér þykir slæmt að heyra að enginn skriður er kominn á þetta mál af hálfu íslenskra stjórnvalda. Ég ítreka að það er ákaflega brýnt að hafist verði handa í þessu máli. Það þolir enga bið.
Hvað varðar athugasemd hv. þm. Guðmundar J. Guðmundssonar liggur í augum uppi að ítarlegri upplýsingum er ekki hægt að koma á framfæri í jafnstuttu máli og okkur þm. leyfist í þessari umræðu. Hættan er svo mikil að það ná varla orð yfir hana.
Ég vil líka benda á að hætta á meiri háttar kjarnorkuslysi eykst í sama hlutfalli og stækkun versins, þ.e. sextánfalt, ef af þessari stækkun verður. Einnig vil ég láta þess getið að það er áætlað að fljúga með plútoníum frá verinu, flytja það þannig frá framleiðslustað þangað sem það er notað, og það þarf ekki nema eitt flugslys til að við fáum heilan flugvélarfarm af plútoníum í hafið.
Það er líka vitað að bátar og veiðarfæri draga að sér geislavirk efni og því eru sjómenn þegar í bráðri hættu vegna losunar úrgangsefna frá þessu kjarnorkuveri.
Ég vil því brýna fyrir íslenskum stjórnvöldum að sofa ekki á verðinum í þessu máli heldur hefjast þegar handa.