15.12.1986
Efri deild: 19. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1689 í B-deild Alþingistíðinda. (1429)

88. mál, álagning tímabundinna skatta og gjalda 1987

Stefán Benediktsson:

Frú forseti. Eins og fram er komið hjá hv. 3. þm. Norðurl. v. hefur minni hl. ekki gert athugasemdir nema við eina grein þessa frv., þ.e. um húsnæðisgjaldið svokallaða sem komið var á á árinu 1985 í samkomulagi stjórnvalda og stjórnarandstöðu til að leysa úr brýnustu vandamálum húsbyggjenda og húskaupenda. Alls ekki var ætlast til að þetta gjald yrði að föstum skatti, en það virðist einhvern veginn vera þannig að tímabundin gjöld sem lögð eru á eins og það fræga gjald sem talað er um í III. kafla þessara laga, þ.e. tímabundið vörugjald, hafi tilhneigingu til þess að festast jafnvel enn frekar en önnur. En skv. fjárlagafrv. er gert ráð fyrir að framlag ríkissjóðs til sjóðs Húsnæðisstofnunar ríkisins verði um 1000 millj. kr. og þessum skatti er ætlað að taka inn nærri 70% þeirra tekna sem til þarf til að standa undir þessu gjaldi umfram það nýja fyrirkomulag sem þegar er orðið á fjáröflun til sjóðsins og þá á ég við skuldabréfakaupin hjá lífeyrissjóðunum.

Við getum ekki samþykkt framlengingu þessa gjalds og munum því ekki taka þátt í að afgreiða a.m.k. þann þátt þessa frv. Að öðru leyti er ekkert annað um þetta frv. að segja en það venjulega, sem kemur nokkurn veginn sem jóla- og nýjárskveðjur til ríkisstjórnarinnar, að óska henni til hamingju með að vera enn einu sinni að framlengja þann skatt sem stjórnarflokkarnir og þá sérstaklega Sjálfstfl. hataðist hvað mest út í og skammaðist hvað mest út í á sínum tíma þegar honum var komið á og í hvert skipti sem hann var framlengdur í tíð annarra ríkisstjórna.