15.12.1986
Efri deild: 19. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1705 í B-deild Alþingistíðinda. (1440)
24. mál, lánsfjárlög 1987
Frsm. meiri hl. fjh.- og viðskn. (Eyjólfur Konráð Jónsson):
Hæstv. forseti. Eins og ég gat um hér í fyrri ræðu minni gerði ég ráð fyrir því að aðalumræðan yrði kannske við 3. umr. og við mundum þá e.t.v. hafa almenna efnahagsumræðu. Það hefur lítið komið hér fram sem ég þarf að leiðrétta eða andmæla. Það var aðeins misskilningur kannske að því er varðar útvarpsgjöldin af innfluttum tækjum, að gjöldin af þeim féllu niður þarna í nokkur ár, það er ekki í beinu framhaldi eins og mátti skilja af ræðu hv. þm. Sigríðar Dúnu Kristmundsdóttur. Það hefur nú leiðrést í ræðu hv. þm. Eiðs Guðnasonar. Þessi gjöld voru fallin niður en koma að nýju inn eða áttu að koma að nýju inn með útvarpslögunum en féllu endanlega niður frá 1980 þangað til þau voru aftur tekin inn í nýju útvarpslögin. En það skiptir ekki meginmáli. Vandi útvarpsins er mjög mikill. Það sem ég sagði og vil endurtaka hér í tilefni af orðum hv. þm. Haralds Ólafssonar er að forstöðumenn útvarps, útvarpsstjóri og fjármálastjóri útvarps, komu til fundar við okkur og greindu frá þessum gífurlega vanda. Ég sagðist vita til þess að það væri í skoðun hvort eitthvað væri hægt að gera. Hæstv. fjmrh. hefur upplýst okkur um það að við megum eiga von á að fá nýjar upplýsingar eftir ríkisstjórnarfund á morgun. Ég vona að hægt verði að koma á sameiginlegum fundi efri- og neðrideildarnefndanna einhvern tíma síðdegis á morgun. Það er tilgangslítið að halda fund í fyrramálið. Við höfum ekki miklar nýjar upplýsingar. Ég segi það hér til upplýsingar fyrir nefndarmenn.
Það situr síst á mér að hefja einhverjar almennar umræður hér núna. Ég geri það væntanlega eins og aðrir við 3. umr. en mig langar samt af því að hér var nefnd Einsteins-kenning og skemmtileg samlíking um það að komandi kynslóðir mundu þurfa að greiða skuldir sem ríkissjóður stofnar til. Ef þessar skuldir eru innlendar þá hygg ég að menn geti í það ráðið hvort þessar byrðar verði þungbærar eða ekki. Ef komandi kynslóð á að borga þessa peninga þá hljóta einhverjir að taka við þeim. Það hljóta einhverjir að vera eigendur, einhverjir að vera kröfuhafar ef skuldarar eru fyrir hendi. Þess vegna væri gaman að hugleiða það til næsta fundar hvort einhver vildi segja mér frá því hver það væri sem fengi þessa peninga í hendur, þessa miklu fjármuni í hendur ef það eru komandi kynslóðir sem eiga að greiða féð. Spurningin er: Hver tekur við milljörðunum sem komandi kynslóð á að greiða vegna innlendra skulda ríkissjóðs?