15.12.1986
Efri deild: 19. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1709 í B-deild Alþingistíðinda. (1446)

254. mál, málefni aldraðra

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra (Ragnhildur Helgadóttir):

Frú forseti. Hér er enn eitt af hinum árvissu frv. til meðferðar. Þetta frv. er um breyt. á l. nr. 91 frá 1982 um málefni aldraðra. Í þeim lögum er gert ráð fyrir að þau gildi til ársloka 1987 þannig að eitt ár er eftir af gildistíma þeirra. Svo stendur á um þann kafla þessa frv. sem fjallar um Framkvæmdasjóð aldraðra að gjaldið til hans tekur mið af verðlagsbreytingum milli ára og þess vegna er það að lagt er til að upphæð þessi hækki í fyrsta lagi í samræmi við það og í öðru lagi umfram þá hækkun, þannig að gjaldið verði, ef frv. verður að lögum, 1500 kr. Ef einungis verðlagsbreytingin hefði verið í frv. þá hefði gjaldið orðið 1380 kr.

Ég leyfi mér að leggja til að Alþingi hækki þá upphæð núna þetta eina ár sem eftir er af gildistíma laganna með hliðsjón af hinni miklu þörf sem er í öllum byggðum landsins fyrir stofnanir og íbúðir fyrir aldraða. Ég veit að ég þarf ekki að útlista það fyrir neinum hv. þm. hygg ég að svo einkennilega standi á um þetta gjald að það sé eini skatturinn í landinu sem menn greiða með nokkurn veginn glöðu geði þegar til þess er litið að það er verið með því að leysa þörf sem fer vaxandi ár frá ári. Við erum eiginlega að búa okkur undir þjóðfélagsþróun sem færri verða til að kosta eftir nokkur ár. Með hinni góðu heilsugæslu fylgir það að fólkið lifir lengur og þeir verða fleiri sem þurfa umönnunar í ellinni. Við viljum leggja okkar af mörkum til þess að ævikvöld meðbræðra okkar og systra verði þannig að mannlegt sé og sæmandi. Þess vegna er þetta litla frv. flutt á þann veg að gert er ráð fyrir örlítið meiri hækkun í frv. en beinlínís er nauðsyn vegna verðlagsþróunar.

Ég leyfi mér, frú forseti, að leggja til að frv. verði að lokinni þessari 1. umr, vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og trn.