15.12.1986
Neðri deild: 20. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1714 í B-deild Alþingistíðinda. (1457)

92. mál, Landhelgisgæsla Íslands

Frsm. allshn. (Gunnar G. Schram):

Herra forseti. Allshn. hefur rætt það frv. til laga sem er á dagskrá, um breytingu á lögum um Landhelgisgæslu Íslands, og kannað þær umsagnir sem um frv. bárust sem voru allar jákvæðar. Nefndin leggur til að frv. verði samþykkt en þó með einni breytingu sem nefndin flytur á þskj. 267. Þessi breyting er gerð á 2. gr. frv. og er að ábendingu og samkvæmt tillögu Landhelgisgæslu Íslands. Hún felur það í sér, eins og fram kemur á þskj., að í stað þess sem segir í lagafrv., að ákvæði frv. að því er varðar skiptingu björgunarlauna gildi um björgun eftir 15. september á þessu ári, skuli ákvæði frv. gilda um afgreiðslu björgunarmála eftir 15. september. Þessi breyting á skiptingu björgunarlaunanna sem um er að ræða, þ.e. að áhafnir varðskipanna fá stærri hlutdeild í björgunarlaununum en áður tíðkaðist, nær þá einnig til þeirra tilvika þar sem björgun hefur átt sér stað fyrir 15. september. Tekur það til nokkurra slíkra tilvika í fortíðinni en ekki aðeins til þeirra björgunartilvika sem eiga sér stað eftir 15. september á þessu ári.

Nefndarmenn voru sammála um að hér væri um sanngjarna og eðlilega breytingu á frv. að ræða. Undir nál. rita auk mín Guðrún Helgadóttir, Ólafur Þ. Þórðarson og Stefán Guðmundsson.