15.12.1986
Neðri deild: 21. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1723 í B-deild Alþingistíðinda. (1485)
233. mál, tekjustofnar sveitarfélaga
Frsm. félmn. (Friðrik Sophusson):
Herra forseti. Á þskj. 321 er svofellt nál. frá félmn.:
„Nefndin hefur rætt frv. og fengið til viðtals Húnboga Þorsteinsson deildarstjóra.
Nefndin mælir með samþykkt frv. með þeim breytingum á 1. gr. sem fram koma á sérstöku þskj. Sú brtt. er flutt vegna þess að í nýrri áætlun Þjóðhagsstofnunar er gert ráð fyrir að laun hækki um 35% á milli áranna 1985 og 1986 en ekki 31% eins og er í frv.
Einstakir nefndarmenn áskilja sér rétt til að flytja eða fylgja brtt."
Undir þetta rita allir nefndarmennirnir, en Karvel Pálmason og Guðmundur J. Guðmundsson með fyrirvara.
Við flytjum brtt., nefndarmenn, á þskj. 322 sem eru, eins og kemur fram í nál., einungis tölulegar lagfærslur. Ég held þó að það sé rétt að rifja upp hvaða liðir þetta eru í lögum um tekjustofna sveitarfélaga sem verið er að breyta.
Í 1. tölul. er verið að hækka fasta lækkun útsvars einstaklinga, í 2. tölul. frv. og um leið brtt. er verið að hækka barnafrádrátt og í 3. tölul. frv. og um leið brtt. er verið að hækka það mark sem miðað er við þegar útsvar er alveg fellt niður. Það er m.ö.o. gert ráð fyrir að þeir sem fá álagt útsvar að upphæð 1193 kr. fái það fellt niður.