15.12.1986
Efri deild: 20. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1756 í B-deild Alþingistíðinda. (1526)
87. mál, verkfall flugvirkja og flugvélstjóra hjá Arnarflugi hf.
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir:
Virðulegi forseti. Hér hefur nú verið mælt fyrir meirihlutaáliti í þessu máli, en það bregður svo við að ekkert minnihlutaálit er fram komið í málinu og veit ég ekki hverju það kann að sæta.
Kvennalistinn á ekki fulltrúa í samgn. þessarar hv. deildar, en ég vil láta skoðun mína á þessu frv. og jafnframt á næsta dagskrármáli, sem er frv. til laga um stöðvun verkfalls félagsmanna í Skipstjórafélagi Íslands og Sjómannafélagi Íslands, koma í ljós. Við Kvennalistakonur erum alfarið andvígar lagasetningu á verkföll af þeirri einföldu ástæðu að verkfallsrétturinn er sá eini réttur sem menn geta gripið til þegar í nauðir rekur í kjarasamningum. Vissulega má segja að sá réttur sé neyðarréttur og vandmeðfarinn, en reglan á að vera sú að hann sé virtur og að á hann séu ekki sett lög.
Það sem ekki hvað síst er ámælisvert í þróun mála undanfarin ár í þessum efnum er að menn hafa vanist því að lög séu sett á verkföll og þau þannig stöðvuð. Það gerir að verkum að menn eru hættir að tala saman í alvöru við samningaborðið. Menn setja fram ýtrustu kröfur á báða bóga og hvika hvergi í trausti þess að stjórnvöld setji lög á verkföll og leysi þannig málið. Þetta tel ég ákaflega hættulega og ámælisverða þróun og þess vegna, auk þess sem ég sagði áðan um að virða beri verkfallsréttinn, mun ég greiða atkvæði gegn þessum frv. báðum.