21.10.1986
Sameinað þing: 5. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 211 í B-deild Alþingistíðinda. (154)
37. mál, rannsóknarlektor í sagnfræði
Fyrirspyrjandi (Sigríður Dúna Kristmundsdóttir):
Herra forseti. Endurreisn hæstv. menntmrh. á stöðu rannsóknarlektors í sagnfræði við heimspekideild Háskóla Íslands hefur verið fagnað af þeim sem málið er skyldast, en því jafnframt kröftuglega mótmælt af þeim sömu aðilum hvernig að þessari stöðuveitingu var staðið af hálfu ráðherra.
Ljóst er að margir fræðimenn íslenskir hafa meiri menntun í sagnfræði en dr. Hannes Hólmsteinn Gissurarson sem ráðherra setti í stöðuna og að Hannes Hólmsteinn hefur aldrei verið dæmdur hæfur til að gegna embætti í sagnfræði yfirleitt. Einnig er ljóst að við þessa stöðuveitingu virti ráðherra ekki þau lög sem í gildi eru um stöðuveitingar við Háskóla Íslands. Í ályktun fundar kennara í sagnfræði við Háskóla Íslands frá 19. sept. s.l. segir svo, með leyfi forseta:
„Fundurinn harmar að ráðið skuli hafa verið í stöðuna án þess að hún hafi verið auglýst eins og lög mæla fyrir. Aðstæður geta varla réttlætt undantekninguna sem hér var gerð. Eins og málum var háttað fengu hvorki dómnefnd né heimspekideild tækifæri til að meta hæfi manna til að gegna stöðunni líkt og lög og reglugerðir Háskólans segja til um. Það er sérstaklega mikilvægt að ákvæðum laga um auglýsingu stöðu sé fylgt við háskóla til að standa vörð um reisn fræðigreinar og frelsi hennar til að þróast eðlilega.“
Í ályktun aðalfundar Sagnfræðingafélagsins frá 30. sept. s.l. segir svo, með leyfi forseta: „Aðalfundur Sagnfræðingafélagsins haldinn 30/9 1986 lýsir vanþóknun sinni á þeirri aðferð sem höfð var við ráðningu rannsóknarlektors í sagnfræði við Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 15. sept. s.l. Um leið og því ber að fagna að menntmrh. hefur ákveðið að endurreisa stöðu rannsóknarlektors í sagnfræði er mjög ámælisvert að hann skuli hafa sett mann í stöðuna eftir eigin geðþótta. Þannig hefur ráðherra virt að vettugi lög og reglur sem gilda um stöðuveitingar við Háskóla Íslands og vanvirt það sjálfræði sem akademísk fræði eiga tilkall til að njóta.“
Í ályktun frá Félagi sagnfræðinema við Háskóla Íslands, Espólín, frá 23. sept., kveður og við sama tóm. Miklu skiptir að mínu viti að ráðherra menntamála á hverjum tíma virði sjálfstæði og hlutverk þeirra menntastofnana sem undir hann heyra og því spyr ég núv. menntmrh. á þskj. 37:
„1. Hvaða forsendur lagði ráðherra til grundvallar þegar hann setti í stöðu rannsóknarlektors í sagnfræði við heimspekideild Háskóla Íslands 17. sept. s.l.?
2. Hvers vegna var staðan ekki auglýst?"