16.12.1986
Sameinað þing: 32. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1789 í B-deild Alþingistíðinda. (1572)

139. mál, vísinda- og rannsóknaráð

Menntamálaráðherra (Sverrir Hermannsson):

Herra forseti. Hv. 3. landsk. þm. spyr hvenær ég hyggist leggja fram frv. til l. um vísinda- og rannsóknaráð. Um það bil sem Alþingi kemur saman að nýju eftir jólaleyfi. Það hefur verið unnið snarplega að lokasmíð þessa frv. og hafa þeir haft það með höndum háskólarektor Sigmundur Guðbjarnason, Vilhjálmur Lúðvíksson framkvæmdastjóri Rannsóknaráðs og Árni Gunnarsson skrifstofustjóri í menntmrn. Ég hef auðvitað þann fyrirvara á ef eitthvað óvænt kæmi sem hindraði samkomulag um málið innan ríkisstjórnar, en þetta mál hefur verið rætt við forsrh., sem hefur látið sig það miklu varða, og ég held að sakir standi nú þannig að ég lofi ekki upp í ermina á mér þegar ég segi að frv. muni sjá dagsins ljós u.þ.b. sem hið háa Alþingi kemur saman á nýjan leik eftir jólafrí.