16.12.1986
Sameinað þing: 32. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1789 í B-deild Alþingistíðinda. (1574)

139. mál, vísinda- og rannsóknaráð

Björn Dagbjartsson:

Herra forseti. Aðeins örstutta athugasemd. Ég er afskaplega feginn því að tíu ára meðgöngutíma þessa frv. (SvH: Það eru níu.) virðist vera að ljúka, níu þá, og hillir undir léttasóttina. Ég vona sannarlega að það þurfi engan keisaraskurð þar og ég trúi ekki að neitt komi upp í ríkisstjórn sem hindrar það.