16.12.1986
Sameinað þing: 32. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1802 í B-deild Alþingistíðinda. (1597)
201. mál, fjárhagsvandi Þjóðleikhússins
Haraldur Ólafsson:
Herra forseti. Það hlýtur að vera metnaðarmál þingsins að taka undir þau orð hæstv. menntmrh. að nú verði að reisa Þjóðleikhúsið úr rústum. Ég held að það hafi ekki verið hægt að komast öllu betur að orði. Húsið sjálft liggur undir stórskemmdum. Þarna er eitt af hinum dýrmætari húsum í eigu ríkisins sem liggur við að sé að hrynja þannig að 7,5 millj. kr. hafa ákaflega lítið að segja nema til þess að bæta úr allra alvarlegustu göllum sem á húsinu eru. Það þarf að leggja miklu meira fé í þetta. Ég vænti þess að hæstv. menntmrh. geti gefið okkur skýrslu um störf þeirra tveggja nefnda, hann nefndi aðeins eina nefnd, sem hafa verið að vinna að því að sögn að finna lausn á þessu máli.
Ég held að við hljótum að gera þá kröfu til ríkisvaldsins að það geri stofnun eins og Þjóðleikhúsinu fært að sinna þeim verkefnum sem henni eru sett í lögum. Og ég hlýt að ítreka að framlag upp á innan við 40% til eðlilegs rekstrar leikhússins þekkist hvergi á byggðu bóli þar sem um styrkt leikhús er að ræða. Og þegar verið er að ræða um styrkt leikhús eða ríkisleikhús eða borgarleikhús erum við að ræða um leikhús sem hefur öðrum skyldum að gegna en leikhús sem kannske tekur upp eitt eða tvö verk á ári til að sýna og byggir nær eingöngu á áhorfendum. Ríkisleikhús eða opinbert leikhús hefur langtum fleiri og margvíslegri skyldum að gegna en slík leikhús. Það hlýtur að vera metnaðarmál okkar að a.m.k. 80% af rekstrarkostnaði þjóðleikhúss komi frá ríkinu.