16.12.1986
Sameinað þing: 32. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1803 í B-deild Alþingistíðinda. (1598)

201. mál, fjárhagsvandi Þjóðleikhússins

Sigríður Dúna Kristmundsdóttir:

Herra forseti. Ég þakka hv. fyrirspyrjanda fyrir að vekja athygli á fjárhagsvanda Þjóðleikhússins. Eins og fram kom í máli hennar hafa framlög til þessarar menningarstofnunar þjóðarinnar farið hríðlækkandi frá ári til árs og eru nú komin niður fyrir 40% af rekstrarkostnaði. Það er sennilega einsdæmi hér í norðurálfu og það er sennilega líka einsdæmi hversu vel Þjóðleikhúsinu hefur tekist að halda á spöðunum við þessar aðstæður og bjóða okkur góða leiklist. Þar að auki er leikhúsást Íslendinga sennilega einnig einsdæmi því að hér er leikhússókn sú mesta sem a.m.k. er á Norðurlöndum.

Það er alveg ljóst að þær milljónir sem hæstv. menntmrh. nefndi í máli sínu áðan duga engan veginn til að bæta um betur. Hæstv. ráðh. svaraði 5. spurningu fyrirspyrjanda eitthvað á þá leið að metnað fyrir hönd Þjóðleikhússins verðum við að hafa og síðan bætti hann við seinna í ræðu sinni að nú væri atrennan að hefjast. Ekki hefst hún beint byrlega ef hún á að byrja á þessum fáu milljónum. Það er gott að hæstv. ráðh. tekur þannig í málin, en orðin ein duga ekki. Það eru verkin sem endanlega tala. Þess vegna vil ég skora á hæstv. ráðh. að beita nú öllu sínu afli við fjvn. og fá þessum málum komið í enn betra horf áður en fjárlög koma til 3. umr.