16.12.1986
Sameinað þing: 32. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1806 í B-deild Alþingistíðinda. (1603)

Fyrirspurn um skólaakstur

Menntamálaráðherra (Sverrir Hermannsson):

Herra forseti. Ég varð þess áskynja þegar ég kom af öðrum löndum í síðustu viku að hér hafði þetta mál verið gert að umtalsefni og má nokkurri furðu gegna að það skyldi hafa verið gert að mér fjarstöddum. Ég hafði að vísu varamann hér á þingi. Ég veit ekki hvort hv. 5. þm. Austurl. gerir ráð fyrir því að skipstjórinn frá Vopnafirði sitji uppi með upplýsingar í málinu þannig að hann eigi erindi við hann um þetta mál eða forsetann. Svar hefur ekki borist af því að svar er ekki tilbúið. Svo einfalt er málið.

Ég bað hins vegar um að hv. 5. þm. Austurl. yrði sent jafnharðan það sem tilbúið væri, m.a. það sem í síðustu viku var lagt fyrir meiri hl. fjvn. um nýja skipan mála varðandi þessa kostnaðarliði, skólaakstur, mötuneyti og gæslu.

Ég lagði þetta mál fyrir hæstv. ríkisstjórn í morgun og fyrir þingflokka stjórnarliðsins verða þessar tillögur lagðar á morgun. Auðvitað hefði farið betur á því að þetta hefði verið fyrr tilbúið, en tveir aukamenn ráðnir í ráðuneytinu ásamt þeim þriðja sem á þar atvinnusæti hafa unnið hörðum höndum í tvo og hálfan mánuð að þessum málum vegna þess að það þurfti að gera úttekt á hverjum einasta skóla og hafa samband við alla forráðamenn sem þetta mál varðar. Þetta er skýringin. Ég veit að hv. þm. dettur ekki í hug að ég liggi á svörunum nema af því sem ég hef þau ekki. En ég mun eins fljótt og kostur er senda honum með venjubundnum hætti skriflegt svar eins og óskað var um þetta mál og það kemur ekki við fyrirspurnatíma í þingi. Málið er ekki bundið við þann tíma þar sem beðið var um skriflegt svar eins og ég segi.

Rétt er það að tillögur þær sem ég hef lagt fyrir munu samkvæmt því verðlagi sem frv. er á nú þýða um 90 millj. kr. niðurskurð. Það eru auknar álögur fyrir sveitarfélögin, en enginn kostur er að búa við sama skipulag og var eins og það hefur farið úr hendi mjög víða. Því eru þessar tillögur gerðar og ég er alveg sannfærður um að þegar menn hafa glöggvað sig á þeim upplýsingum sem fylgja hinum nýju tillögum munu þeir áreiðanlega fagna þeim. Þetta er ekkert stórvægilegt og smáræði hreint sem hin fátækari sveitarfélög takast á herðar með þessu móti, en til þess að ný skipan fáist á málin og við getum treyst því að þetta fari vel úr hendi þarf að gerbreyta um frá því sem verið hefur.

Þetta get ég upplýst nú, en aðalefni fsp., sem lögð var hér fram í byrjun þings, fjallaði um málefni sem þarfnaðist gagngerrar úttektar og það er sú úttekt sem er fyrst núna að sjá dagsins ljós. Og þá er það eftir úrslit þess hvernig þessu máli reiðir af og tillögugerð minni, með hvaða hætti ég hlýt að svara hv. þm., af því sem hér er auðvitað ekki um mitt einkamál að tefla heldur niðurstöðu og stefnumótun af hálfu hæstv. ríkisstjórnar.