16.12.1986
Sameinað þing: 32. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1819 í B-deild Alþingistíðinda. (1624)

190. mál, umhverfismál

Fyrirspyrjandi (Kristín Halldórsdóttir):

Herra forseti. Út af ummælum hæstv. ráðh. áðan um að ég hefði ekki verið til staðar síðasta þriðjudag vil ég geta þess að ég hafði fjarvistarleyfi.

Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir svörin þó ég treysti mér ekki til að lofa hann fyrir neina röggsemi í þessu máli. Það ber hins vegar vissulega að virða að hann skuli vera svo heiðarlegur að viðurkenna hversu lítið hefur gerst og hversu illa hefur verið staðið við fyrirheit í upphafi kjörtímabilsins hverjum svo sem um er að kenna. Ef til vill er ekki gustuk að vera að ýta við einu eða neinu núna þegar núv. ríkisstjórn er að enda sitt skeið. Það er augljóst að málið er komið í algeran hnút og algeran eindaga og er í rauninni aldeilis furðulegt, og vitna ég þar til orða þeirra sem töluðu á undan mér, að ekki skuli hafa gengið né rekið í þessu brýna máli. Menn hafa lýst geysilegum áhuga og vilja á því að reynt sé að koma einhverju skikki á allan glundroðann sem ríkir í umhverfismál um og það er engin hemja að geta ekki staðið við þetta né komið sér saman um nokkurn skapaðan hlut. Mér er nær að halda að það hafi verið heldur lítil alvara á bak við öll loforðin. Þetta er fyrst og fremst spurning um vilja. Það er í raun og veru búinn að fara fram mjög mikill undirbúningur, búið að vinna upp alls konar plögg í þessum málum. Auðvitað þvælast hinir og þessir smákóngar fyrir, dauðhræddir um að það komist upp að eitthvað verði betur gert ef þeir sleppa af því hendinni. En kannske er aðalorsök þessa endemis seinagangs fyrst og fremst hjá stjórnmálamönnunum sem komast ekki upp úr sandkassanum og fara í fýlu ef einhver býr til flottari kastala að þeirra mati.

En mér finnst sannarlega hart að slíkt skuli þurfa að bitna á jafnbrýnu framfaramáli og hér um ræðir. Nú, eftir þau svör sem við höfum fengið í dag, er augljóst að engra breytinga eða framfara er að vænta í þessum málaflokki í tíð núv. ríkisstjórnar.