17.12.1986
Efri deild: 23. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1827 í B-deild Alþingistíðinda. (1655)

92. mál, Landhelgisgæsla Íslands

Frsm. allshn. (Jón Kristjánsson):

Virðulegi forseti. Ég vil vegna ræðu hv. 4. þm. Vesturl. taka fram að það hefði að sjálfsögðu ekkert verið því til fyrirstöðu að kalla fleiri aðila fyrir nefndina, en um það komu engar óskir fram og var algjör samstaða um málið á þeim fundum sem nefndin hélt.

Frv. felur í sér að hlutur áhafnar við skiptingu björgunarlauna eykst úr 25% í 40% af því sem til skipta kemur. Forstjóri Landhelgisgæslunnar hafði undir höndum samning og lagði fram í nefndinni um þessi atriði.

Ég vildi aðeins láta þetta koma fram en hæstv. dómsmrh. hefur svarað öðrum atriðum ræðunnar.