21.10.1986
Sameinað þing: 5. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 219 í B-deild Alþingistíðinda. (167)
Síldarsölusamningar við Sovétríkin
Samgönguráðherra (Matthías Bjarnason):
Herra forseti. Það er eðlilegt að þessu máli sé hreyft á hv. Alþingi, en hins vegar er engin leið að gera þessu máli nein þau skil sem nauðsynlegt er í því fyrirspurnarformi sem hér gildir.
Ég tek undir það, sem hv. fyrirspyrjandi sagði, að ástæða þess að svona er komið er undirboð einkum tveggja þjóða, Kanada og Norðmanna. Sovétmenn vilja nota sér þau tilboð sem einkum Kanadamenn hafa boðið og vilja svo miða við það í samningum við okkur Íslendinga. Við höfum hins vegar talið að hér sé um undirboð að ræða, það sé um „dumping“ að ræða, og ekki sé annað að leggja til grundvallar en það að við höfum selt á frjálsu markaðsverði 51 þúsund tunnur til Finna og Svía. Við viljum leggja það til grundvallar söluverði okkar síldar. Í því felst bein viðurkenning á gæðum okkar síldar umfram aðra. Sovétmenn hafa áður viðurkennt það því að þeir hafa keypt af okkur síld á hærra verði en þeir hafa keypt af Kanadamönnum. Þetta verðum við allt að hafa í huga.
Ég hef boðist til þess og óskað eftir því, ef það væri leið til þess að ljúka þessum samningum og ná samkomulagi, að fara til Moskva, en hins vegar hafa viðbrögð við því ekki verið nein enn þá svo að ég fer ekki nema einhverjar líkur séu á að það greiði fyrir málum. Við sendum orðsendingu í gær í gegnum sovéska sendiráðið. Formleg viðbrögð hafa ekki komið, en það er margt sem bendir til þess að þessi mál séu til vinsamlegrar umhugsunar hjá hinum aðilanum. Við skulum því vona að eitthvað rætist úr.
Íslendingar eru háðastir sovétmarkaðnum um sölu á saltsíld. Á s.l. ári fóru þannig 83% af saltsíldarútflutningnum til Sovétríkjanna. Sovéski markaðurinn er hins vegar einnig mikilvægur okkur varðandi ýmsar aðrar vörutegundir. Á árinu 1985 fóru 54% af karfaflökunum þangað, 52% af prjónavörum úr ull miðað við magn, 31% af heilfrysta fiskinum og 18% af lagmetinu. Þá má ekki gleyma því hvernig verðmætistölurnar eru. Á s.l. ári var mestur útflutningur á freðfiski eða 1 milljarður 46 millj. Þar næst kom síldin, 750 milij. Síðan ullarvörur, 287 millj. Og loks lagmetið, 105 millj. Á þessu ári er samningurinn um sölu á freðfiski um það bil tvöfalt hærri í bandaríkjadölum en saltsíldarsamningurinn.
Það sem við flytjum inn eru aðallega olíuvörur. Innflutningur á olíuvörum frá Sovétríkjunum hefur á síðustu árum verið um 90% af innflutningi okkar frá því landi. Á s.l. ári nam innflutningur olíuvara frá Sovétríkjunum þó ekki nema 51% af heildarinnflutningi allra olíuvara á því ári, en sé litið aðeins á þrjár helstu olíuvörurnar sem fluttar eru inn frá Sovétríkjunum nam innflutningur þeirra á síðasta ári 304 þús. tonnum eða 69% af heildarinnflutningi. Öll svartolían var keypt frá Sovétríkjunum og 61 þús. tonn af bensíni eða 64% af heildarinnflutningi. Af gasolíu voru keypt 136 þús. tonn eða 57% af heildarinnflutningi. Á þessu ári er samið um kaup á 310 þús. tonnum af olíuvörum, en búast má við að ekki komi hingað nema um 260 þús. tonn vegna stórminnkaðrar notkunar á svartolíu.
Samninganefnd er nú í Moskva til að ræða um áframhaldandi olíukaup innan ramma viðskiptasamningsins. Það er ákveðið mál frá minni hendi að ekki verði gengið frá samningi um kaup á olíuvörum frá Sovétríkjunum að svo stöddu. Ég fullvissa þingheim um að ég og ríkisstjórnin í heild munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að greiða fyrir og greiða úr þeirri flækju sem þessi viðskipti hafa komist í.