17.12.1986
Efri deild: 23. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1838 í B-deild Alþingistíðinda. (1680)
24. mál, lánsfjárlög 1987
Frsm. minni hl. fjh.- og viðskn. (Stefán Benediktsson):
Frú forseti. Nú er að því leyti ekki tími til að berja sér á brjóst að þessi tími er tími krafraverka. Það má alla vega teljast til kraftaverka að afgreiða jafnflókin og veigamikil mál og við erum að afgreiða núna á jafnstuttum tíma og við gerum þó maður hefði heldur kosið að það fengist lengri tími til þess og ekki treysti ég mér til að stæra mig af afrekinu út á við.
Ég mæli hér frú forseti, fyrir nál. minni hl. fjh.og viðskn. á þskj. 376. Í sem stystu máli er hægt að byrja á að geta þess, svo maður taki af allan vafa, að minni hl. nefndarinnar mælir ekki með samþykkt frv. Til þess liggja margar ástæður og mun ég geta nokkurra.
Mönnum er, held ég, hollt að rifja upp að hrein erlend skuldaaukning opinberra aðila nam 2,5 milljörðum kr. á því ári sem er að líða. Heildarlántökur fóru 3 milljarða fram úr áætlun. Aðeins 500 milljónir af því eru innlendar lántökur. Í stað 163 millj. rekstrarafgangs verður rekstrarhalli ríkissjóðs a.m.k. 2 milljarðar kr. á þessu ári og næsta ár verður rekstrarhallinn síst minni, enda er beinlínis stefnt að hallarekstri í stað þess að tvö síðustu ár var þó gert ráð fyrir rekstrarafgangi. Þessi stefnubreyting um enn meiri halla en áður, þ.e. ráðgerðan halla, er í ljósi reynslunnar og þegar hugsað er til þess að næsta fjárlagaár er kosningaár, uggvekjandi.
Þessi ríkisstjórn, sem settist að völdum í krafti þess m.a. að hafa svo miklu meira vit á fjármálum en allir aðrir, settist í stólana í ljósi mikillar efnahagsholskeflu sem talað var um kosningaárið 1983. Henni hefur tekist samanlagt á þremur árum að reka ríkissjóð með 6 milljarða halla framreiknað til ársins í ár. Þrátt fyrir síauknar þjóðartekjur og þrátt fyrir hógværa samninga á þessu ári tekst ríkisstjórninni ekki að ná jöfnuði í rekstri, en það er, svo ég vitni í þeirra eigin orð, „veigamikil forsenda á efnahagssviðinu almennt“. Þessi orð eru tekin beint úr fjárlagafrv. 1987.
Aðilar vinnumarkaðarins lögðu til í samningum sínum nú á dögunum að erlendar lántökuáætlanir lánsfjárlagafrv. lækkuðu um 1130 millj. kr. sem í stað þess yrði mætt með skuldabréfakaupum lífeyrissjóða. Þessu lofaði ríkisstjórnin að framfylgja, þ.e. samningarnir grundvölluðust á því að ríkisstjórnin gaf loforð eða fyrirheit um að draga úr erlendum lántökum sem næmi 1130 millj. kr. til að gera samningana mögulega til þess fyrst og fremst að draga úr verðbólguhættu. Nú ber svo við að fjmrh. ráðgerir að semja við lífeyrissjóðina um 2 milljarða kr. kaup á skuldabréfum umfram það sem lífeyrissjóðirnir kaupa af byggingarsjóði Húsnæðisstofnunar og 1300 millj. af þessu ætlar ríkissjóður að taka til sín beint til að mæta áhrifum kjarasamninga. Þessa upphæð á að nota til að mæta hækkuðum tryggingabótum, til að mæta takmörkunum á hækkunum á gjaldskrá nokkurra opinberra fyrirtækja og til að mæta því „tekjutapi“ sem verður af brottfalli orkuskattsins. Það hefði einhvern tímann verið kallað að pissa í skóinn sinn að taka lán til að mæta þeim áhrifum sem þessir kjarasamningar hafa á reksturinn þegar maður horfir til þess að það var forsenda samninganna að draga úr umsvifum ríkisins með þeim hætti að lækka erlendar lántökur. Í minnisblaði, sem samningsaðilar fengu frá hæstv. forsrh. þar sem hann vísar til minnisblaðs um verðlags- og efnahagsmál sem viðræðunefndir ASÍ, VSÍ og Vinnumálasambands samvinnufélaganna höfðu sent ríkisstjórninni, segir í 3. og 4. lið:
„Ríkisstjórnin ítrekar stefnu sína um lækkun erlendra skulda og mun leita allra leiða, m.a. með endurskoðun lánsfjáráætlunar, til að erlend lántaka verði ekki umfram afborganir á næsta ári, enda takist að beina lántökum fjárfestingarlánasjóða til lífeyrissjóðanna í ríkara mæli en ráð hafði verið fyrir gert. Á sviði peningamála verður fylgt aðhaldssamri stefnu og Seðlabanka Íslands falið að kanna sparnaðarform sem fallin eru til þess að örva sparnað innanlands og efla stöðugleika íslensku krónunnar, m.a. með stofnun gengistryggðra sparireikninga.“
Eitt er kannske hægt að viðurkenna, þessi aukna innlenda lántaka ríkisstjórnarinnar á e.t.v. eftir að hafa einhver áhrif á sparnaðaráhuga manna, hvað sem hægt er að segja um sparnaðargetu, vegna þess að þetta mun ugglaust leiða til nokkurrar vaxtahækkunar hér innanlands. Það þýðir náttúrlega vaxtahækkun um leið fyrir þá sem eiga sparifé.
Ef við látum þetta nægja, í fyrstu a.m.k., frú forseti, um ásetning og aðalinnihald frv., þá er að snúa sér að einstökum hlutum frv. eða köflum þess. Þá ber náttúrlega fyrst fyrir augu lántökuheimildir í frv. til Framkvæmdasjóðs og atvinnuvegasjóða, og ef maður ber þann kafla saman við II. kafla frv. þar sem um er að ræða skerðingarákvæði, þá er afstaða ríkisstjórnarinnar til sjóða yfirleitt nokkuð skýr. Hún kemur fram í því að þar sem um er að ræða mjög skýrt afmarkaða sjóði, þ.e. sjóði með mjög skýrt afmörkuð verkefni og nánast eyrnamerktar tekjur, þar beitir ríkisstjórnin skerðingarákvæðum mjög ótæpilega. Þar gæti maður talið upp hvern sjóðinn á fætur öðrum sem skertur er. Þar ber hæst Framkvæmdasjóð fatlaðra, sem að vísu hefur nú, að því er við höfum fengið upplýsingar um, fengið loforð um 30% hækkun frá þeirri skerðingu sem fyrst var lögð til í þessu frv.
Við höfum líka séð hér á þskj . að lögð er fram till. um að breyta skerðingu þeirri sem þetta frv. gerir ráð fyrir á tekjum Ríkisútvarpsins vegna aðflutningsgjalda af hljóðvarps- og sjónvarpstækjum. Þó ekki nema hálfa leiðina því að brtt. gerir einungis ráð fyrir því að ákvæðið verði ekki afturvirkt, þ.e. að þær tekjur sem Ríkisútvarpið á rétt á á þessu ári renni til Ríkisútvarpsins en síðan ekki söguna meir. En þar sem um þá sjóði er að ræða sem ríkið ætti síst að vera kennt við, og þá á ég m.a. bæði við Framkvæmdasjóð og svo atvinnuvegasjóðina, þá sjóði sem hvað mest hafa komið við sögu í offjárfestingum s.l. ára, þar aftur á móti er skerðingaráhugi ríkisstjórnarinnar ekki eins mikill og þegar um þá sjóði er að ræða þar sem framlög renna beint til menningar- eða líknarmála.
Í brtt. meiri hlutans við frv. nú við 3. umr. koma reyndar fram till. til lækkunar á þessum framlögum. Þar á ég við brtt. við 7.-11. gr. Er það reyndar mjög í anda þeirra brtt. sem við Ed.-menn í þingflokki Alþfl. höfum lagt fram, þó við viljum þar e.t.v. ganga í sumum tilvikum nokkuð lengra.
Þá er að benda á, frú forseti, framlög til byggingarsjóðanna. Ef grannt er skoðað kemur í ljós að framlög ríkissjóðs til Byggingarsjóðs ríkisins eru orðin innan við 20% af ráðstöfunarfé sjóðsins, t.d. minna en tekjur sjóðsins af afborgunum, vöxtum og verðbótum. Er þó ekki öll sagan sögð því raunverulegt framlag ríkissjóðs til Byggingarsjóðsins er í raun og veru ekki sá eini milljarður sem sýndur er hér í töflum og tillögum, heldur er það í raun og veru ekki nema 300 millj. því að 700 millj. af þeim milljarði sem ríkissjóður leggur til Byggingarsjóðsins eru fengnar með húsnæðisgjaldinu sem hér fór í gegn fyrir nokkrum dögum og er að verða að lögum. En það húsnæðisgjald var, eins og menn rekur minni til, lagt á einu sinni árið 1985 til þess að mæta bráðavanda sem húsbyggjendur áttu þá í og menn voru ekki enn þá sammála um hvernig ætti að leysa, en alls ekki til ætlast að það yrði að föstum tekjustofni Byggingarsjóðs ríkisins, enda aðrir tekjustofnar tiltækari ef um það var að tefla. Sama gildir í raun og veru um framlag ríkisins til Byggingarsjóðs verkamanna. Það er að vísu 300 millj. kr. í ár, það sama og í fyrra, en þetta eru slétt 20% af ráðstöfunarfé sjóðsins á næsta ári.
Eitt var það atriði sem nokkuð tafði fyrir að nefndin gæti í raun og veru lokið afgreiðslu lánsfjárlaga. Það var að málefni þriggja hitaveitna voru ekki að fullu útkljáð. Er þar um að ræða Hitaveitu Akureyrar, Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar og Fjarvarmaveitu Vestmannaeyja. Er skemmst frá því að segja að 20. nóvember s.l. tilnefndi iðnrh. fimm manna nefnd til þess að eiga viðræður við fulltrúa þessara hitaveitna með það fyrir augum að leita lausnar á fjárhagsvandamálum þeirra. Þessi nefnd átti, að því er okkur var tjáð, að skila niðurstöðum s.l. mánudag, þann 15. desember, en niðurstöður hennar urðu í reynd býsna óljósar. Þær eru, með leyfi frú forseta, að nefndin leggur til að ríkisstjórnin hlutist til um að svohljóðandi heimildarákvæði verði tekið upp í frv. til lánsfjárlaga fyrir árið 1987:
„Fjmrh. er fyrir hönd ríkissjóðs, og að fengnu samþykki fjvn., heimilt að semja við Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar, Hitaveitu Akureyrar og Fjarhitun Vestmannaeyja um ráðstafanir til að bæta fjárhag veitnanna í framtíðinni.
Þetta er í brtt. meiri hl. við 5. gr. frv., en einnig kemur fram að nefndin leggur til að heimild þessi verði nýtt að eftirtöldum skilyrðum uppfylltum:
1. Fjármagnskostnaður veitnanna hafi verið lágmarkaður með hagstæðustu skuldbreytingum.
2. Mörkuð verði ákveðin stefna í þróun gjaldskráa veitnanna er gildi uns því marki er náð að afborganir lána samsvari fyrningum.
3. Veitunum verði tryggðar þær tekjur sem ýtrustu markaðsaðgerðir gefa, annaðhvort með því að tengja öll rafhituð hús eins og upphaflegar áætlanir gerðu ráð fyrir eða með millifærslum úr bæjarsjóði.
4. Í Eyjafirði og Borgarfirði ábyrgjast viðkomandi sveitarfélög að stofnuð verði stærri orkuveitufyrirtæki, með eða án þátttöku ríkisins, með eða án markaðssvæðis RARIK í þessum héruðum, en þó þannig að eiginfjárstaða þessara fyrirtækja sé jákvæð og öll tækifæri til hagræðingar í rekstri sem við þetta bjóðast verði nýtt.
Nefndin virðist hafa farið nokkuð rækilega ofan í vanda þessara fyrirtækja en greinilega ekki komist að endanlegri niðurstöðu um úrlausnir í málefnum hverrar einstakrar. Þannig er sú brtt. orðin til sem ég nefndi, frú forseti, frá meiri hl. fjh.- og viðskn., þar sem segir að fjmrh. sé fyrir hönd ríkissjóðs, og að fengnu samþykki fjvn., heimilt að semja við Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar, Hitaveitu Akureyrar og Fjarhitun Vestmannaeyja um ráðstafanir til að bæta fjárhag veitnanna í framtíðinni. Frú forseti. Væri nokkur leið að fá hæstv. fjmrh. í salinn? (Forseti: Það skal athugað.)
Frú forseti. Ég fór fram á að hæstv. fjmrh. kæmi örstutta stund hingað í salinn vegna þeirrar brtt. sem fyrir liggur frá meiri hl. fjh.- og viðskn., í 2. tölul. á þskj. 371. Þetta er brtt. við 5. gr. Þar er lagt til að 5. tölul. greinarinnar orðist svo:
„Aðrar hitaveitur, lán á árinu 1987 að fjárhæð allt að 281 millj. kr. eða jafnvirði þeirrar fjárhæðar í erlendri mynt samkvæmt nánari ákvörðun fjmrh.
Fjmrh. er fyrir hönd ríkissjóðs, og að fengnu samþykki fjvn., heimilt að semja við Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar, Hitaveitu Akureyrar og Fjarhitun Vestmannaeyja um ráðstafanir til að bæta fjárhag veitnanna í framtíðinni.“
Áður en hæstv. fjmrh. gekk í salinn var ég búinn að lesa hér lokaorðin í skýrslu nefndar iðnrh., þar sem nefndarmenn geta þeirra skilyrða sem þeir telja að verði að uppfylla til þess að fjmrh. geti samið við þessar veitur - að því er mér skilst. Nú langar mig til þess að fá að vita hjá hæstv. fjmrh. í sem stystu máli hvað þetta þýðir.
Nefndarmenn ræddu það nokkuð sín á milli og urðu m.a. sammála um það að líklega gæti þetta ekki þýtt það að fjmrh. hefði t.d. heimild til að taka erlent lán vegna þessara hugsanlegu samninga. Aftur á móti gæti þetta greinilega þýtt það að fjmrh. gæti t.d. einfaldlega keypt þessar veitur eða gert samning um kaup þeirra. Þetta gæti líka þýtt það að fjmrh. gæti yfirtekið skuldir þessara veitna. Og þetta gæti svo sem líka þýtt einungis það að hann ætlaði að yfirtaka lánakostnað eða vaxtakostnað þessara veitna. Þetta getur í raun og veru nánast þýtt allt milli himins og jarðar, nema líklega ekki það að tekin verði erlend lán af þessu tilefni. En þó skyldi maður aldrei segja aldrei. Þetta ákvæði virðist vera býsna opið og því tel ég mjög nauðsynlegt að fjmrh. geri hér nokkuð ítarlega grein fyrir því í ræðustól hvernig hann túlkar þetta ákvæði, hvað hann skilur undir þessu ákvæði, hvaða heimildir hann raunverulega telji að felist í þessu ákvæði.
Af því að ég er hér í ræðustól, frú forseti, og sé ekki ástæðu til þess að vera að fara hér upp sérstaklega af því tilefni, þá vil ég kynna hér brtt. okkar Alþýðuflokksmanna í Ed. við lánsfjárlagafrv. Þær eru á þskj. 375 og snerta í raun og veru einungis 6., 7., 8., 9. og 10. gr. frv., þ.e. þær greinar sem fjalla um lántökur atvinnuvegasjóðanna. Þessar till. eru frá okkar hendi þannig til komnar að við töldum eðlilegt að setja fram till. til lækkunar á erlendri lántöku í samræmi við þann ásetning ríkisstjórnar sem fram kom í þeim minnisblöðum sem fóru á milli aðila vinnumarkaðarins og ríkisstjórnarinnar þegar samningarnir voru í gangi.
Tillögurnar gera ráð fyrir því að 6. gr. frv. falli algjörlega niður, þ.e. að Framkvæmdasjóði verði ekki heimilt að taka lán á árinu 1987 að fj árhæð allt að 100 þús. kr. eða jafnvirði þeirrar fjárhæðar í erlendri mynt, heldur sé honum skylt að fjármagna sína lánastarfsemi algjörlega á innanlandsmarkaði; síðan við 7. gr. að þar verði lánsheimildin lækkuð úr 750 þús. í 250 þús. ; að við 8. gr. þá komi þar 740 þús. í stað 840 þús.; við 9. gr. þar komi 50 þús. í stað 100 þús. ; og síðan við 10. gr. þar komi 200 þús. í stað 400 þús.
Nú er það þannig að þessar brtt. okkar Alþýðuflokksmanna hér í Ed. virðast a.m.k. að hluta til samræmast mjög fyrirætlunum meiri hlutans. Á þskj. 371 leggur meiri hlutinn fram brtt. til lækkunar á nánast öllum sömu greinum og í einu tilviki erum við þó algjörlega sammála, þar sem um er að ræða að heimild Framkvæmdasjóðs til 100 þús. kr. erlendrar lántöku falli niður.
Frú forseti. Það er ljóst að ýmsir liðir fjárlagafrv. gætu reynst mjög óvissir þegar til framkvæmda kemur. Þar má nefna það sem ég hef hér gert að umtalsefni, áhrif kjarasamninganna. Mönnum virðist alls ekki vera ljóst hver raunveruleg áhrif þeirra verða. Síðan má nefna vafaatriði mikil eins og ófrágengna samninga um aukin skuldabréfakaup lífeyrissjóða af ríkinu. Lífeyrissjóðirnir eru náttúrlega í því sem maður kallar hörðum viðskiptum og það er mjög ólíklegt að þeir fallist á önnur vaxtakjör á þeim skuldabréfum sem þeim verður gert að kaupa samkvæmt fyrirætlunum ríkisstjórnarinnar en þau bestu sem hægt er að fá. Samningsstaða þeirra er óneitanlega mjög sterk þegar maður horfir til þess hversu mikilvægt það er fyrir ríkisstjórnina að geta beint svona miklu af lántöku sinni á innlendan markað. Þá fer það nánast algerlega eftir því hversu harðir samningamenn forstöðumenn lífeyrissjóðanna eru, hversu mikil áhrif þessi lántaka síðan endanlega hefur á almennt vaxtastig á peningamarkaði og auðvitað ómögulegt á þessu augnabliki að spá nokkru um það.
Síðan höfum við þessi ófrágengnu málefni hitaveitnanna á Akureyri, í Borgarfirði og í Vestmannaeyjum. Við vitum að fjárhagsvandi þessara fyrirtækja er í einu orði sagt hrikalegur. Þó að fjárhagslegur baggi sá, sem legðist á ríkissjóð á komandi ári, yrði hugsanlega ekki ýkja mikill miðað við margan annan baggann sem hann bindur sér, þá er samt sem áður mjög uggvænlegt til þess að hugsa að við séum hérna e.t.v. að gefa fjmrh. heimild til þess að binda framtíðarríkisstjórnum mjög stóran bagga, eiginlega án nokkurra skilyrða af okkar hálfu.
Eins og ég sagði áðan þá er náttúrlega ómögulegt að gera sér grein fyrir áhrifum þessara fjárlaga á peningamarkaðinn og fleira og fleira. Að öllum þessum mörgu atriðum athuguðum urðum við í minni hl. fjh.- og viðskn. sammála um það að mæla ekki með samþykkt frv.
Þær till., sem Alþýðuflokksmenn hér í Ed. leggja fram til breytinga á þessu frv., gera ráð fyrir því að draga úr erlendum lántökum um 990 millj., og er ég þá að miða við frv. eins og það var þegar till. meiri hl. höfðu verið samþykktar eftir 2. umr. Till. gera ráð fyrir því að auka innlenda lántöku um 390 millj. kr. og draga þannig samanlagt úr heildarlántökum ríkissjóðs um 600 millj. kr.
Frú forseti. Það er í sjálfu sér ekki beint hægt að kalla frv. óraunsætt vegna þess að dauður hlutur eins og frv. hefur náttúrlega í sjálfu sér engan vilja eða skynjum. Aftur á móti held ég að það sé afskaplega vægt til orða tekið að segja það að glöggskyggni þeirra manna, sem treysta sér til þess að samþykkja þetta frv. og gera það að lögum, hefur oft verið meiri en hún er í dag.