17.12.1986
Efri deild: 23. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1849 í B-deild Alþingistíðinda. (1684)

24. mál, lánsfjárlög 1987

Eiður Guðnason:

Virðulegi forseti. Það væri vissulega ástæða til að gera ýmsar greinar frv. til lánsfjárlaga að sérstöku umræðuefni hér, en það hefur þegar verið allítarlega gert af hálfu stjórnarandstöðunnar og hv. 8. þm. Reykv. hefur gert grein fyrir afstöðu okkar Alþýðuflokksmanna til þessa máls. Ég mun þess vegna að mestu í þessari minni ræðu einbeita mér að því að fjalla um eina grein þessa frv., þ.e. 28. gr., sem ég hef á þskj. 351 leyft mér að flytja brtt. við, en sú grein er ein af mörgum skerðingargreinum í II. kafla frv. þar sem ákvæði nýsamþykktra útvarpslaga um tekjustofna Ríkisútvarpsins eru numin úr gildi.

Nú hefur það að vísu gerst frá því að ég flutti brtt. mína að formaður fjh.- og viðskn., hv. 4. þm. Norðurl. v. Eyjólfur Konráð Jónsson, hefur flutt brtt. við þessa grein þess efnis að sú skerðing sem þar um ræðir nái aðeins til ársins 1987, ekki til ársins 1986. Þetta er góðra gjalda vert, en þó er skrefið ekki stigið nema hálft en kemur raunar ekki á óvart vegna þess að ég sé ekki betur en það sé í andstöðu við alla meginstefnu hans flokks, Sjálfstfl., að hafa fjármálaákvæði af þessu tagi afturvirk eins og frv. gerir ráð fyrir, þ.e. að svipta Ríkisútvarpið í desember þeim tekjum sem það hafði reiknað með að hafa til ráðstöfunar allt árið. Það er í fullkominni andstöðu við alla stefnu Sjálfstfl. í fjármálum að grípa til slíkra aðgerða. Og það er ekki bara í andstöðu við meginstefnu þess flokks. Þetta er einfaldlega ekki hægt að gera þó svo menn hafi ætlað sér að gera það hér.

Í öðru lagi er rétt að geta þess að tekjurnar af þessu gjaldi á yfirstandandi ári eru verulega miklu meiri en gert var ráð fyrir í áætlunum Ríkisútvarpsins fyrir þetta ár og það er auðvitað gott. Það var ætlað að þessar tekjur yrðu 50 millj. kr., en þær eru verulega miklu hærri, sjálfsagt einar 120-130 millj. a.m.k., þannig að hér er um verulega fjármuni að ræða og ég er ekkert að gera lítið úr því. En þetta mál snýst hins vegar ekki um að slaka til með afturvirknina sem ég var áðan, hæstv. fjmrh., að segja að hlyti að vera í andstöðu við alla meginstefnu Sjálfstfl., að hafa þannig afturvirkar fjármálaráðstafanir, hvort sem það er skattlagning eða eitthvað annað. Þarna er verið að gera upptækar tekjur sem búið var að fá ákveðinni ríkisstofnun.

En það er annað atriði í þessu máli sem skiptir miklu meira máli. Ég mun ekki, virðulegi forseti, verða mjög langorður, en þó tel ég alveg nauðsynlegt að taka nokkurn tíma, enda þótt kvöldsett sé orðið, til að ræða þetta mál.

Útvarpsstjóri hefur skrifað þingflokkunum og ég tel nauðsynlegt vegna þess hvernig þetta mál er vaxið að bréf útvarpsstjóra verði gert heyrum kunnugt í þessari hv. deild. Með leyfi forseta ætla ég að lesa bréf útvarpsstjóra sem ég þarf ekki að taka fram að hefur um árabil verið einn af helstu trúnaðarmönnum Sjálfstfl. í borgarstjórn Reykjavíkur og hefur nú tekið við þessu veigamikla embætti. Ég skil vel að hæstv. fjmrh. skuli þá yfirgefa salinn, en ég ætla svo sem ekkert að vera að kalla eftir honum vegna þess að ég veit að hann hefur fengið þetta bréf líka. En málavaxta vegna finnst mér nauðsynlegt að þetta bréf sé að finna í Alþingistíðindum og ég ætla, með leyfi forseta, að lesa það:

„Í athugasemdum við frv. til fjárlaga fyrir árið 1987 segir svo m.a. varðandi Ríkisútvarpið, framkvæmdasjóð bls. 298:

„Samkvæmt útvarpslögum eiga aðflutningsgjöld og sölugjald af innfluttum sjónvarps- og sjónvarpstækjum að renna til framkvæmdasjóðs Ríkisútvarpsins. Ekki liggur fyrir hve háar þessar tekjur eru, en Ríkisútvarpið hefur í áætlun sinni metið þær 50 millj . kr. Í þessu frv. er við það miðað að lögum verði breytt þannig að aðflutningsgjaldatekjur renni í ríkissjóð. Ráðstöfunarfé sjóðsins skerðist því að sama skapi. Ekki er gert ráð fyrir lántöku sjóðsins til byggingarframkvæmdanna. Fjármál Ríkisútvarpsins, þar með framkvæmdasjóðs, þarfnast nánari umfjöllunar fyrir afgreiðslu fjárlaga.“

Vegna lokaorða í ofanritaðri tilvitnun skal því fagnað sérstaklega að þessi mikilsverðu málefni Ríkisútvarpsins skuli fá sérstaka umfjöllun við afgreiðslu fjárlaga. Ríkisútvarpið vill fyrir sitt leyti koma á framfæri eindregnum mótmælum við þeim áformum sem lýst er í tilvitnuðum athugasemdum og varar jafnframt við þeim háskalegu afleiðingum sem slík skerðing á tekjustofnum þess hefði í för með sér. Óþarft er að rifja upp fyrir hv. alþm. þær breytingar sem þeir ákváðu á tekjustofnum Ríkisútvarpsins er ný útvarpslög voru afgreidd fyrir rúmu ári. Þó skal áréttað að í hinni nýju löggjöf, sem nú hefur gilt í tæpt ár, segir svo m.a. í 22. gr.:

„Megintekjustofnar Ríkisútvarpsins eru gjöld fyrir útvarpsafnot, gjöld fyrir auglýsingar í hljóðvarpi og sjónvarpi, aðflutningsgjöld af hljóðvarpsog sjónvarpstækjum og hlutum í þau og aðrir tekjustofnar sem Alþingi kann að ákveða.“

Aðflutningsgjöldin voru nýr tekjustofn sem útvarpslaganefnd hafði lagt til að tekinn yrði upp vegna fyrirsjáanlegrar skerðingar á auglýsingatekjum sem Ríkisútvarpið yrði fyrir þegar samkeppni í útvarpsrekstri tæki að gæta. Jafnframt var sett í hin nýju útvarpslög ákvæði um að aðflutningsgjöld af hljóðvarps- og sjónvarpstækjum og hlutum í þau skyldu renna óskipt í framkvæmdasjóð Ríkisútvarpsins, en fé hans skal varið til að tryggja viðunandi húsnæði, tækjakost og dreifikerfi fyrir starfsemi þess.

Á undanförnum árum hefur Ríkisútvarpið þurft í síauknum mæli að byggja afkomu sína á sölu auglýsinga þannig að auglýsingatekjur námu árið 1985 rúmlega 65% af tekjum hljóðvarps og 34% af tekjum sjónvarpsins. Hlutfall afnotagjaldsins í heildartekjum hefur farið hraðlækkandi síðasta áratuginn, var 55,9% fyrir hljóðvarp 1976 en 31,3% 1985 og 74,2% fyrir sjónvarp 1976 en 63,7% 1985.

Vegna fyrirsjáanlegrar samkeppni um auglýsingar ákvað löggjafinn þá skiljanlegu varúðarráðstöfun til tryggingar óskertum rekstri og framkvæmdum Ríkisútvarpsins að ætla því nýjan tekjustofn sem aðflutningsgjöldin eru. Það skal tekið fram að ekkert af aðflutningsgjöldum þessa árs hefur verið gert upp við Ríkisútvarpið. Nú er þvert á móti gert ráð fyrir að stofnunin verði svipt tekjum þessa árs og hins næsta af hinum nýja tekjustofni sem útvarpslög ákvarða henni. Ríkisútvarpið áætlaði þennan tekjustofn um 50 millj. kr., en nýjustu upplýsingar benda til að aðflutningsgjöld og sölugjald af viðtækjum nemi rúmlega 100 millj. kr. á þessu ári.

Það hefur reynst rétt ályktun útvarpslaganefndar að auglýsingatekjur Ríkisútvarpsins mundu verulega dragast saman í samkeppni útvarpsstöðva. Reynsla undanfarinna mánaða leiðir þetta ótvírætt í ljós, einkanlega í hljóðvarpi. Því er það alger forsenda fyrir óskertri þjónustu við landsmenn alla og áframhaldandi eflingu dreifikerfis hljóðvarps og sjónvarps um landið að Ríkisútvarpið haldi lögbundnum tekjustofnum sínum óskertum. Í því sambandi skal sérstök athygli vakin á samþykkt sem gerð var með samhljóða atkvæðum allra fulltrúa í útvarpsráði á fundi þess hinn 17. okt., en hún er svohljóðandi:

„Útvarpsráð mótmælir þeim áformum sem uppi eru í frv. til fjárlaga fyrir árið 1987 þar sem ráðgert er að svipta Ríkisútvarpið mikilvægum tekjustofni. Útvarpsráð minnir á að staðfest var í nýjum útvarpslögum, sem tóku gildi um síðustu áramót, að Ríkisútvarpið hefði tekjur af aðflutningsgjöldum hljóðvarps- og sjónvarpstækja og hluta til þeirra. Ekkert hefur breyst sem réttlætir að svipta stofnunina þessum tekjum. Miklu fremur ættu stjórnvöld að kappkosta að treysta rekstur Ríkisútvarpsins sem mikilvægrar menningarstofnunar og öryggistækis alþjóðar.“

Ríkisútvarpið treystir því að hv. alþm. sýni skilning á hinum sérstöku aðstæðum sem stofnunin stendur frammi fyrir um þessar mundir og að ekki verði gripið til ótímabærrar niðurfellingar veigamikils tekjustofns sem skiptir sköpum fyrir afkomu stofnunarinnar.

Virðingarfyllst.

Markús Örn Antonsson.“

Þá hef ég lokið lestri þessa bréfs, virðulegi forseti, en ég skil í rauninni ákaflega vel að hæstv. fjmrh. skyldi hafa horfið úr salnum vegna þess að ég held að í þessu máli hafi hann ekkert mjög góða samvisku. Staðreynd er að þegar var verið að vinna að nýju útvarpslagafrv. hér á Alþingi um árið var jafnan sagt að það væri ekki ætlunin að ganga á hlut Ríkisútvarpsins eða skerða hann með neinum hætti, þessarar stofnunar okkar allra, þessarar stofnunar sem sendir dagskrá um landið allt. Það var margtekið fram af hálfu stjórnarsinna. Raunar var útvarpslagafrv. á sínum tíma samþykkt með atkvæðum minni hluta Alþingis og stjórnarflokkarnir voru klofnir í málinu. Það var hvað eftir annað sagt og hefur hvað eftir annað verið endurtekið, m.a. af hæstv. menntmrh., að menn vilji Ríkisútvarpinu allt það besta og vilji styrkja stöðu þess og gera veg þess sem mestan. Þetta eru orðin, en hverjar eru gerðirnar? Gerðirnar koma í ljós þegar gengið er þvert á það sem var meginsjónarmið við samþykkt útvarpslaganna, þ.e. að styrkja stöðu Ríkisútvarpsins þegar ríkisstjórnin sviptir stofnunina þeim tekjum sem henni voru fengnar með útvarpslögum til að tryggja stöðu hennar í samkeppninni, í þeirri samkeppni sem nýju útvarpslögin opnuðu leið fyrir og sem er ekkert við að segja. Það er hins vegar ámælisvert og miklu meira en ámælisvert þegar menn gefa sér þær forsendur við samþykkt nýju útvarpslaganna að það eigi að tryggja stöðu Ríkisútvarpsins með þessum hætti, af því að fyrirsjáanlegt sé að það tapi auglýsingatekjum með tilkomu annarra útvarps- og sjónvarpsstöðva eigi að tryggja stöðuna með þessu. Þegar útvarpslögin hafa verið í gildi í tæpt ár er það ríkisstjórn Sjálfstfl. og framsóknar sem sviptir Ríkisútvarpið þessum tekjustofni. Mér er alveg sama hvað þessir ágætu menn segja um þann hug er þeir beri til Ríkisútvarpsins og hvað þeir vilja gera. Mér er alveg sama um allar þeirra yfirlýsingar. Hér tala verkin. Ríkisútvarpið stendur í því að eignast eigið húsnæði, umdeilda byggingu að vísu sem ég hef ýmislegt við að athuga og hefði kosið að sjá margt þar öðruvísi gert með skynsamlegri hætti. Um það er ekki að sakast nú vegna þess að það mál er það langt komið. En við skulum líka gera okkur grein fyrir því að það verður að byggja nýja langbylgjustöð á næstunni sem kostar 300 millj. kr. bara til að tryggja að Ríkisútvarpið geti áfram verið það öryggistæki sem það hefur verið þessari þjóð sem hvenær sem er og meira en aðrar þjóðir á von á því að hér gerist náttúruhamfarir af ýmsu tagi. Það kostar 300 millj. kr. að byggja nýja langbylgjustöð. Það er einhver guðs mildi sem hefur bjargað því að stengurnar við langbylgjustöðina, loftnetsmöstrin, hanga enn uppi.

Það ánægjulega gerðist þegar þetta mál var hér til 1. umr. að þm. Framsfl., a.m.k. tveir þeirra, hv. 9. þm. Reykv. og að ég hygg líka hv. 4. þm. Austurl., lýstu því yfir að þeir mundu ekki samþykkja þessa skerðingu á tekjustofnum Ríkisútvarpsins. Þetta kom mér raunar ekkert á óvart vegna þess að afstaða þeirra þegar útvarpslögin voru hér til umræðu á sínum tíma var mjög eindregin. T.d. sagði hv. þm. Haraldur Ólafsson þann 14. maí þegar útvarpslögin voru til umræðu í Ed., með leyfi forseta:

„Til að standa undir auknum kostnaði við rekstur Ríkisútvarpsins höfum við framsóknarmenn verið dálítið hikandi að ganga langt í að minnka auglýsingatekjur útvarpsins. Þar af leiðandi höfum við haldið nokkuð fast við það að auglýsingar yrðu ekki með öllu gefnar frjálsar í öðrum útvarpsstöðvum.“

Það var raunar ýmislegt fleira sagt í þessum umræðum um útvarpslögin. Hæstv. þáv. menntmrh. Ragnhildur Helgadóttir sagði er hún mælti fyrir málinu í þessari hv. deild og var þar að vitna í forsendur útvarpslaganefndarinnar:

„Að leggja áfram þær skyldur Ríkisútvarpinu á herðar að sjá öllum landsmönnum fyrir fjölbreyttri dagskrá hljóðvarps og sjónvarps og tryggja aðstöðu og tekjur til þess að svo geti orðið.“

Hér er verið að ganga þvert á þetta. Ég fæ ekki annað séð af þessari ræðu hæstv. þáv. menntmrh. en að hún hafi gert þessar röksemdir útvarpslaganefndarinnar að sínum í þessum umræðum.

En ég get ekki á mér setið, virðulegi forseti, vegna þess hvernig þetta mál nú er komið og hvernig það er vaxið, að minna á ýmis fleiri ummæli hv. þm. Framsfl. úr umræðum í Ed. 11. júní 1985 um þau lög sem nú hafa gilt í tæpt ár. Ég veit að hv. þm. Haraldur Ólafsson þekkir vel til málefna Ríkisútvarpsins, hefur raunar starfað þar og hefur alla tíð haft mjög eindregna afstöðu í málefnum Ríkisútvarpsins og mjög skynsamlega að mínu mati. Það urðu verulegar umræður um auglýsingamálið í þessum umræðum, enda var eðlilegt að menn hefðu um þetta efasemdir. Hv. þm. Haraldur Ólafsson sagði 11. júní, með leyfi forseta:

„Varðandi auglýsingamálið er það að segja að skv. hinum nýju lögum eru Ríkisútvarpinu lagðar ýmsar nýjar skyldur á herðar, m.a. þær að koma upp fræðsluútvarpi og að Rás 2 nái um allt land. Að því er nú reyndar unnið en það kostar fé. Það er einnig rætt um að sjónvarp skuli ná til næstu miða. Það getur hugsanlega verið atriði sem kallar á auknar fjárveitingar. Þá er einnig gert ráð fyrir, og það er ekki litils um vert, að aðstöðu til dagskrárgerðar og hljóðvarps á vegum Ríkisútvarpsins verði komið upp í öllum kjördæmum landsins. Þegar hér er svo að staðið hlýtur það að vera meginkrafa að möguleikar Ríkisútvarpsins til tekna séu ekki skertir. Með því að gefa auglýsingar frjálsar í öllum stöðvum, hvort sem unnt er að innheimta afnotagjald eða ekki, liggur það í augum uppi að verið er að draga úr tekjuöflunarmöguleikum Ríkisútvarpsins. Þar af leiðandi hef ég leyft mér að flytja till. um að í þeim stöðvum og við þau skilyrði að unnt er að innheimta afnotagjöld af útsendu útvarps- eða sjónvarpsefni skuli auglýsingar ekki leyfðar.“

Ég ætla að vitna aftur í ræðu þessa hv. þm., með leyfi forseta:

„Að lokum þetta. Tilgangur útvarpslaga er að mínu mati fyrst og fremst sá að efla Ríkisútvarpið, hið raunverulega þjóðarútvarp á Íslandi. Hins vegar á að gefa öðrum aðilum kost á að reka útvarpsstöðvar, en það má ekki vera á kostnað þess miðils sem hátt á sjötta áratug hefur verið ein merkilegasta, fjölbreytilegasta og kannske þegar allt kemur til alls áhrifaríkasta menningarstofnun landsins.“

Þetta tek ég heils hugar undir. Þessu er ég hjartanlega sammála. En mér þykir sem hér hafi ríkisstjórnarmeirihlutinn og þá einkum Sjálfstfl. gengið rækilega á bak orða sinna. Nú er verið að gera allt annað en talað var um þegar útvarpslögin voru keyrð í gegnum Alþingi. Ég hafði ýmislegt við það frv. að athuga og þau lög sem samþykkt voru. Ekki það að útvarpsrekstur væri gefinn frjáls. Það var óhjákvæmilegt. Það var svar við kröfum tímans. Og sá útvarpsrekstur sem við höfum heyrt skv. þessum nýju lögum hefur að mörgu leyti verið afar athyglisverður. Hann hefur að ýmsu leyti verið mjög góður. Þar hefur að mörgu leyti verið farið inn á nýjar brautir og margt mjög fagmannlega og vel gert. Hins vegar hefur líka auðvitað, svo sem eðlilegt er, eitt og annað komið í ljós sem betur mætti fara og þá á ég kannske fyrst og fremst við vissan viðvaningsbrag sem sjálfsagt stendur til bóta, en þó kannske ekkert síður það. sem mér finnst mjög athugavert og umhugsunarvert og þess hefur raunar gætt hjá Ríkisútvarpinu líka því miður í vaxandi mæli, hversu óglögg mörk eru farin að verða víða milli dagskrárefnis og auglýsinga. Um þetta höfum við í hinu nýja útvarpi heyrt ýmis býsna hláleg dæmi og raunar, því miður verð ég að segja, í Ríkisútvarpinu líka. Það er þróun sem er óæskileg vegna þess að hlustendur og horfendur alveg eins og lesendur eiga kröfu til þess að gerð séu glögg skil milli efnis og auglýsinga. Það er raunar verkstjórnar- og vinnulagsatriði og það er eiginlega atriði, að mér finnst, sem varðar beinlínis starfsheiður fréttamanna og blaðamanna.

Ég ætla, virðulegi forseti, með leyfi enn einu sinni að vitna í ræðu sem hv. þm. Haraldur Ólafsson flutti um þetta mál. Hann flutti nefnilega margar og mjög góðar ræður þegar útvarpslögin voru hér til umræðu, eins og hann gerir reyndar nær ævinlega, vil ég leyfa mér að segja. Hann sagði daginn eftir, 12. júní, með leyfi forseta:

„Ég vil taka það fram í sambandi við auglýsingar og ekki auglýsingar að það er ekki spurning um frelsi eða ekki frelsi. Það er spurning um fjárhagsgrundvöll Ríkisútvarpsins. Það er sú ástæða og sú ástæða ein sem hefur ráðið afstöðu Framsfl. til þessa máls. Við teljum að með þeim skyldum sem Ríkisútvarpinu eru lagðar á herðar verði að tryggja framgang þess með því að koma í veg fyrir að auglýsingatekjur þess skerðist að ráði. Ef svo fer að auglýsingatekjur Ríkisútvarpsins skerðast verulega hlýtur að verða að koma til mjög mikilla fjárveitinga úr ríkissjóði til þess að Ríkisútvarpið geti staðið við þær skyldur sem því ber að inna af hendi.“

Ég tek undir þetta líka, þá hugsun sem í þessum orðum felst, vegna þess að þetta er alveg hárrétt. Mig eiginlega brestur orð til að lýsa réttilega þeim hugsunarhætti sem mér finnst felast í afstöðu Sjálfstfl. til þessa máls. Fyrst er sagt: Við ætlum að gefa útvarpsrekstur frjálsan og við ætlum að tryggja Ríkisútvarpinu góðar tekjur af innflutningsgjöldum af útvarps- og sjónvarpstækjum til þess að það geti staðið vel að vígi í samkeppninni. Gott og vel. Útvarpslögin eru samþykkt með þessum tekjustofni. Þegar útvarpslögin nýju hafa gilt í eitt ár, tæpt þó, og það kemur í ljós að auglýsingatekjur Ríkisútvarpsins skerðast mjög verulega og þar með möguleikar þess til að rækja þær skyldur sem útvarpslögin leggja því á herðar koma þessir sömu ágætismenn og segja: Nei, nú tökum við þessar tekjur af Ríkisútvarpinu. Nú er útvarpsreksturinn orðinn frjáls. Lái mér hver sem vill, en mér finnst felast í þessum aðgerðum það felst ekki í orðunum vegna þess að það er sagt annað er gert er - að það sé allt í lagi núna, nú geti Ríkisútvarpið veslast upp. Það er það sem í þessu felst. Ég á ákaflega erfitt með að trúa því að hv. þm. Framsfl. í þessari deild hafi látið Sjálfstfl. þvinga sig í þessu máli, hafi látið beygja sig, jafnvel þótt hæstv. fjmrh. hafi fallist á að falla frá því að þessi ákvæði verði afturvirk. Ég er ekkert að vanmeta það. En það skilur Ríkisútvarpið eftir í bullandi óvissu um sinn rekstur næsta ár. Þetta þýðir örugglega að Ríkisútvarpið verður verulega að draga saman seglin á næsta ári. Eftir þær yfirlýsingar sem gefnar hafa verið og gefnar voru í umræðum um útvarpslögin í fyrra trúi ég því ekki fyrr en ég tek á því að Framsfl. ætli að standa að því að vega að Ríkisútvarpinu með þeim hætti sem nú á að gera.

Ég legg áherslu á að hér er um byggðamál að ræða. Hér er ekki hvað síst um að ræða mál þeirra sem búa utan höfuðborgarsvæðisins. Hér er ekki síst um mál þeirra að ræða og að Ríkisútvarpið geti haldið uppi eðlilegri þjónustu, gegnt sínu menningarhlutverki og ekki síður gegnt sínu öryggishlutverki gagnvart öllum þegnum þessa lands hvar sem þeir búa. Hér er um jafnréttismál að ræða, hér er um byggðamál að ræða og ég trúi því ekki fyrr en ég tek á því að þm. Framsfl. hafi verið kúgaðir til fylgis við þá stefnu Sjálfstfl. að kveða nú Ríkisútvarpið í kútinn, sauma nú rækilega að því, láta það visna og veslast upp eða a.m.k. að gera það lakar fært um að gegna þeim skyldum sem á það eru lagðar í útvarpslögunum.

Það mætti vissulega, virðulegi forseti, tala um þetta töluvert lengi, en ég skal senn fara að stytta mál mitt. Það er ekki ástæða kannske til að setja á langar ræður um þetta. En ég vara alvarlega við því sem hér er að eiga sér stað, ef þm. Framsfl. eru búnir að láta Sjálfstfl. svínbeygja sig í þessu máli og það á að ganga svo nærri Ríkisútvarpinu að það getur ekki haldið uppi eðlilegri þjónustu við alla landsmenn og það eigi að gefa einkastöðvunum enn þá fríara spil. Ég satt að segja held að hv. Framsfl. hljóti að hafa dottið á höfuðið að því er varðar þetta mál. En það kemur allt í ljós þegar þetta mál gengur til atkvæða.

Ég gæti haldið áfram að lesa tilvitnanir í ræður hv. þm. Framsfl. og raunar fleiri þm. um þetta mál, en ég hygg að ég láti staðar numið. Ég þykist hafa vitnað nóg í ræður þeirra. En ég neita því ekki, herra forseti, að ýmislegt fleira langar mig til að segja um þetta efni því að hér eru alvarlegir hlutir á ferð. Hér er verið að vega að jafnréttissjónarmiðum. Hér er verið að vega að landsbyggðinni eins og gert hefur verið í þeim hugmyndum, sem heyrast ekki mikið lengur, þegar hæstv. fjmrh. var að gera því skóna að það væri allt í lagi að selja Rás 2. En þegar betur var að gáð kom nú í ljós að það var ákaflega vanhugsuð hugmynd og raunar kannske óframkvæmanleg.

En það verður vissulega fróðlegt að sjá hvernig atkvæði falla þegar þetta mál kemur til atkvæðagreiðslu. Ég ítreka og vek athygli á því að það var beinlínis í hugum margra þm. ákvörðunarforsenda fyrir því að ljá frv. útvarpslaganna stuðning að þarna var Ríkisútvarpinu veittur tekjustofn sem það hafði raunar áður haft en var seinna svipt. Nú er komið aftan að mönnum með þetta og vegið að þessari stofnun.

Ég fullyrði að útvarpslögin hefðu ekki verið samþykkt á þinginu í fyrra ef Ríkisútvarpinu hefði ekki verið séð fyrir þessum tekjustofni. Ég er alveg sannfærður um það. Ég verð að segja að mér finnast þetta vera vinnubrögð sem eru alþm. ósamboðin, sem eru ráðherrum og ríkisstjórn ósamboðin. Þegar fyrst er sagt já til að fá mál samþykkt og þegar búið er að samþykkja mál er blaðinu snúið við og sagt nei. Þetta er ólíðandi með öllu. Ég bíð þess satt að segja nokkuð spenntur að sjá hvernig atkvæði falla þegar hér fer fram atkvæðagreiðsla, væntanlega innan skamms.

Ég ítreka það enn einu sinni að hér er um jafnréttis- og landsbyggðarmál að ræða. Það getur vel verið að Framsfl. sé ekki lengur landsbyggðarflokkur og standi ekki lengur að því að fólk sem býr úti á landi geti notið góðrar þjónustu Ríkisútvarpsins. Það getur vel verið að þessi breyting hafi átt sér stað. En það kemur þá í ljós við atkvæðagreiðsluna á eftir.

Ég minni á það bréf sem þingflokkum öllum hefur borist frá útvarpsstjóra. Ég hef rætt þessi mál við útvarpsstjóra og ég er ekki að ljóstra upp neinu leyndarmáli þó ég vitni til þess samtals. Ég veit að hann hefur miklar áhyggjur af fjárhagsstöðu Ríkisútvarpsins á næsta ári þegar það nýtur ekki þessara tekna. Ég ræddi það við hann að sú leið væri e.t.v. til samkomulags í málinu að sett yrði einhvers konar þak á þetta. Ef innflutningur sjónvarpstækja yrði svo feiknarlega mikill að menn sæju ofsjónum yfir þeim tekjum sem Ríkisútvarpið fengi væri hugsanlega hægt að setja þak á þetta. Það væri í öðru lagi hægt að segja sem svo sem millileið til samkomulags að Ríkisútvarpið fengi við skulum segja 60 eða 70% af þessum innflutningsgjöldum. Það væri í þriðja lagi hægt að hugsa sér þá millileið, þá sáttaleið í málinu að Ríkisútvarpið fengi af þessu þær tekjur á næsta ári sem það hafði reiknað með að fá á þessu ári, þ. e. 50 millj. sem er verulega minna. Í samtali okkar útvarpsstjóra kom fram að þetta væru ekkert fráleitar lausnir.

Það leynir sér hins vegar ekki að þrátt fyrir fögur orð hæstv. menntmrh., og vildi ég gjarnan að hann segði álit sitt á þessu við þessa umræðu ef hann er í húsinu, herra forseti, yfirlýsingar hans um það að gera vel við Ríkisútvarpið, styrkja stöðu þess og íslenskrar menningar, stendur hann og hans ríkisstjórn að þessu máli. Hæstv. menntmrh. er ekki í húsinu, (Forseti: Það upplýsist hér með að hann er ekki í húsinu.) heyri ég, og þykir mér það miður. En ég segi það aftur og enn að ég gef litið fyrir yfirlýsingar af því tagi sem hæstv. menntmrh. hefur gefið þegar hann kemur hér í ræðustól og segist vilja Ríkisútvarpinu og þeirri menningarstofnun allt hið mesta og besta, en síðan gerir hans ríkisstjórn allt annað. Ég gef lítið fyrir slíkar yfirlýsingar.

Ég ætla ekki, herra forseti, að hafa þessi orð fleiri að sinni. Ég tel mig hafa gert allrækilega grein fyrir afstöðu minni til þessa máls. Ég hef áður lýst skoðunum mínum varðandi ýmsar aðrar greinar þessara lánsfjárlaga, svo sem að því er hitaveiturnar varðar og þau vandamál sem þær eiga við að stríða, og ég ætla ekki að gera það frekar að umtalsefni hér og nú.