17.12.1986
Efri deild: 23. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1866 í B-deild Alþingistíðinda. (1692)

24. mál, lánsfjárlög 1987

Frsm. minni hl. fjh.- og viðskn. (Stefán Benediktsson):

Frú forseti. Ég vildi gjarnan biðja um að reynt yrði að fá hæstv. fjmrh. enn eina ferðina í salinn. (Forseti: Það verður reynt að verða við þeirri ósk.) Það er greinilegt að þau vinnubrögð sem núna eru viðhöfð við fjárlaga- og lánsfjárlagaafgreiðslu gera nánast nauðsynlegt að til séu tvær útgáfur af sem flestum ráðherrum þannig að þeir geti verið samtímis viðstaddir umræður í báðum deildum. (Forseti: Nú gengur hæstv: fjmrh. í salinn svo að þm. getur haldið áfram ræðunni.) Kærar þakkir fyrir, frú forseti.

Ég er kominn hér vegna þess svars sem hæstv. fjmrh. gaf mér viðvíkjandi minni fsp. og síðan 5. þm. Vesturl. viðvíkjandi fsp. um sama efni vegna þess að þau svör sem hæstv. fjmrh. gaf í báðum tilvikum voru allsendis ófullnægjandi. Það má benda á það, ef menn taka lánsfjárlögin í hendina og skoða þau, að allar greinar þessara laga eru tengdar ákveðnum upphæðum þar sem heimilað er eða takmarkað er eða á einhvern hátt tilgreindar ákveðnar upphæðir sem verið er að fjalla um. Í þessu ákvæði, sem bætt er við 5. gr. laganna, er aftur á móti ekki minnst á eina einustu upphæð. Ég fullyrði að þetta ákvæði sé ekki einasta bara loðið. Það er í raun og veru algerlega ónauðsynlegt. Ég ætla að taka skýrt fram strax í upphafi að ég er ekki að gagnrýna svar fjmrh. vegna þess að mér detti í hug að hér búi eitthvað gruggugt undir heldur einfaldlega vegna þess að ég geri mér nokkuð ljósa grein fyrir því að fjmrh. á mjög erfitt með að svara. Þess vegna tel ég um leið algerlega útilokað að taka svona ákvæði inn í lögin. Ég skora á hæstv. ráðh. og ég skora á meiri hl. nefndarinnar að draga þetta ákvæði til baka því að ég fæ ekki betur séð en hæstv. fjmrh. hafi fulla heimild til að starfa að því að leita lausna á vanda þessara hitaveitna, hugsanlega með þátttöku ríkissjóðs, og þegar sú lausn er fundin geti hann einfaldlega lagt fyrir lagafrv. á þingi ef með þarf. Annars getur hann sleppt því. Ég fæ ekki betur séð en hæstv. iðnrh. hafi ekki þurft neina lagaheimild til að skipa nefnd í þessu máli til að leita úrlausna. Nefndin hefur reyndar ekki komist að niðurstöðu. En ég fæ ekki séð að þessi lagaheimild hjálpi á nokkurn hátt mönnum að komast að niðurstöðu. Þvert á móti.

Ég veit ekki að hve miklu leyti deildarmenn hafa fylgst með þessum umræðum, en við í fjh.- og viðskn. þessarar deildar fengum í hendurnar í dag skýrslu svokallaðrar hitaveitunefndar frá iðnrn. gerða í des. 1986. Þar segir til upplýsingar deildarmönnum:

„Nefndin hélt fyrst tvo fundi með viðræðunefnd sveitarfélaganna.“ - Nú er ég að upplýsa þessa hluti hérna vegna þess að það er ekki eins og hafi ekki verið um þá fjallað og það er ekki eins og það liggi ekki þegar fyrir hugmyndir um hvernig eigi að leysa þetta. Ég get ekki séð af lestri þessarar skýrslu að þar sé yfir höfuð hægt að finna margar fleiri leiðir til að leysa málið. Einhver þessara leiða hlýtur því að verða valin og þá eiga menn einfaldlega að leggja þá leið fyrir í frumvarpsformi þegar hún er ákveðin en ekki að skila mönnum opnu umboði í hendur.

„Fulltrúar sveitarfélaganna, sem þátt tóku í þessum viðræðum, lögðu strax fram tillögur um það að öllum erlendum skuldum veitnanna yrði breytt í innlend lán með lægri vöxtum.“ - Þessi tillaga liggur fyrir. Menn urðu ekki sammála um hana. Nefndarmenn í heild urðu ekki sammála um að hægt væri að mæla með framkvæmd þessarar till. við ríkisstjórnina þar eð hún gengi þvert á þær meginreglur sem farið er eftir þegar erlendar lántökur eru heimilaðar, fyrir utan þá greiðslubyrði sem óhjákvæmilega hefði fallið á ríkissjóð.

Nefndin varð sammála um það að leggja þær tillögur fyrir sem núna hafa orðið að hluta þessa frv. Þar á ég við þessa svokölluðu heimildargrein, þetta opna heimildarákvæði til fjmrh. sem ég endurtek að ég tel að sé algerlega ónauðsynlegt. Ég fæ ekki betur séð en fjmrh. hafi fulla heimild til að tala við hvern sem er um hvað sem er og það sé eingöngu þegar að því kemur að hann hugsanlega þarf að fara út fyrir það umboð sem lög veita honum að hann verður að fá þá heimild hjá þinginu, en alveg óhugsandi að gefa honum þessa heimild svo opna eins og hér er. Þá er ég ekki að tala um að fjmrh. sé fulltrúi einhverra óheilbrigðra skoðana endilega heldur að þessi vinnubrögð, þessi tegund löggjafar er farin að verða allt of algeng á þingi, farin að tíðkast allt of mikið, að löggjafinn veiti fulltrúum framkvæmdarvaldsins einfaldlega opið umboð til að gera eitthvað, hvað sem er, og setjist síðan á óæðri endann og horfi á.

Rekstrarstaða þeirra fyrirtækja sem hér er um að ræða er býsna ískyggileg. Innan þessa umboðs felst vald til að fjalla um æðistórfenglega hluti. Samanlagðar skuldir veitnanna þriggja, sem hér er verið að tala um, eru nærri 4 milljarðar. Þar af eru skuldir Hitaveitu Akureyrar rúmlega 2 milljarðar og upplýst er að orka sú sem hún selur er í dag 18% dýrari en olía eða niðurgreitt rafmagn. Skuldir Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar eru tæplega 1,5 milljarðar og þar er orkan 25% dýrari en olía og niðurgreitt rafmagn. Skuldir Vestmannaeyja eru rúmlega 400 millj. kr. Fjarhitun Vestmannaeyja stendur að því leyti dálítið öðruvísi en þær tvær fyrrnefndu að þar er orkan einfaldlega að þverra. Einnig er upplýst í þessari skýrslu að Hitaveita Akureyrar gæti, miðað við albestu aðstæður, greitt niður skuldir sínar á aldarfjórðungi eða 25 árum, en Hitaveita Akraness og Borgarfjarðar getur alls ekki borgað niður sínar skuldir. Þær koma til með að aukast að öllu óbreyttu.

Það eru hér settar fram ákveðnar hugmyndir um hver rekstrarvandinn er og hugsanlegar leiðir til úrbóta. Þá kem ég að því hvað þetta umboð hugsanlega þýðir.

„Nefndin mælir með að lausnar á þessum vanda verði leitað eftir þeim leiðum sem nú verður greint:

1. Hagræðing skulda, þ.e. leitað verði aðstoðar ríkissjóðs og Seðlabanka til að lækka fjármagnskostnað veitnanna eins og unnt er með hagstæðum skuldbreytingum. Markaðsvextir eru nú lægri en oft áður. Þýðingarmiklir gjaldmiðlar eins og bandaríkjadollar hafa lækkað í verði og allt kemur þetta veitunum til góða. Sérfræðingur Seðlabankans hefur metið þennan þátt fyrir nefndina á grundvelli framlagðra gagna. Niðurstaðan er að fjármagnsútgjöld Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar væru í lágmarki, en lækka mætti útgjöld Hitaveitu Akureyrar um 9-10 millj. kr. á ári með skuldbreytingu.

Uppbyggingu veitnanna er nú að mestu lokið. Einkum á Akureyri hafa á undanförnum árum verið gerðar mjög vel heppnaðar tæknilegar endurbætur. Þær hafa leyst orkuöflunarvandamál veitunnar sem voru mjög erfið viðureignar eftir að ljóst var að jarðhitalindir Eyjafjarðarsvæðisins gáfu ekki af sér jafnmikla orku og vonast var eftir í upphafi. Á Akureyri er því ekki árangurs að vænta eftir þessari leið“, þ.e. það er ekki hægt að ná neinum úrbótum á Akureyri með því að leita tæknilegra endurbóta. Þar er eingöngu hægt að hjálpa Akureyringum eftir fjármögnunarleiðinni, þ.e. að gera þeim á einhvern hátt kleift að greiða skuldir sínar niður á 25 árum eins og hagstæðustu aðstæður leyfa.

„Í Borgarfirði er hugsanlegt að breyta sölufyrirkomulagi á svipaðan hátt og Akureyringar hafa gert, en vegna þess að nægilegt vatn er fyrir hendi í Borgarfirði er ekki jafnmikils árangurs að vænta og á Akureyri“, þ.e. tæknilegar úrbætur koma heldur ekki að mjög miklu gagni í Borgarfirði þannig að þetta verða líka þar fjárhagslegar úrbætur.

„Rekstrarhagræðing. Orkumálanefnd Borgarfjarðar hefur um nokkurt skeið rannsakað hvaða hagræði geti orðið af að sameina orkufyrirtæki í Borgarfirði í eitt fyrirtæki, en þau eru nú fimm talsins. Samkvæmt áliti ráðunauta nefndarinnar gæti beinn sparnaður í mannahaldi og bækistöðvarekstri orðið 12-13 millj. kr. á ári, en auk þess kæmi einhver sparnaður vegna hagstæðra innkaupa á rekstrarvörum og beinna viðskipta við Landsvirkjun. Skipulegt hagræði af þessu yrði að núverandi togstreita um rafhitamarkaðinn væru úr sögunni og auknar líkur á að hægt sé að bjóða hverjum notanda betri þjónustu með lágmarkstilkostnaði. Hér er um nokkuð flókið mál að ræða því að allar rafveitur eiga möguleika á mjög ódýrri orku til hitunar í mjög litlu magni og alls ekki sjálfgefið að hagstæðast sé að allir hiti hús sín með hitaveitu, jafnvel þó nægilegt heitt vatn sé fyrir hendi. Nefndin álítur að þessi hagræðingarmöguleiki sé fyrir hendi, bæði í Borgarfirði og í Eyjafirði, og leggur til að mál þetta verði athugað nánar. Til þess þarf orkumálanefnd Borgarfjarðar að ljúka störfum og sveitarfélög í Borgarfirði að hefja viðræður sín á milli á grundvelli þeirra upplýsinga sem hún kemur með. Hliðstætt verk þarf að vinna fyrir Eyjafjarðarsvæðið.“

Hér er ljóst, ef maður horfir til þess hvað menn hafa átt erfitt með að ná samkomulagi um þessa tegund lausnar, að litlar líkur eru á því að hún sé raunverulegur kostur sem menn eru að leita að einfaldlega vegna þess að það er svo margt sem mælir móti því að rafveitur, sem þegar hafa greitt niður allan sinn fjármagnskostnað, fari að verða þátttakendur í fyrirtæki eins og Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar.

En hvað um það. Það þýðir þá einfaldlega að ef menn ætla að leita þessarar leiðar tekur það langan tíma, sjálfsagt svo langan tíma að ráðherra þarf ekkert á þessu heimildarákvæði að halda því að það er enn þá lengra frammi í tímanum að menn nái endanlega saman í málinu.

„Af þeim ráðstöfunum sem hér hafa verið raktar“, segir enn fremur í þessari skýrslu með leyfi forseta, „verður rekstrarvandi allra veitnanna tæpast leystur til fulls. Til að leysa hann koma til greina eftirfarandi möguleikar:

1. Eigendur geta bætt fjárhagsstöðu veitnanna með framlögum, annaðhvort sem millifærslu frá öðrum veitufyrirtækjum eða með sérstökum framlögum úr sveitarsjóði.

2. Á móti framlagi eignaraðila getur komið eiginfjárframlag frá ríkissjóði í formi varanlegra rekstrarfjármuna eða yfirtöku skulda. Framlag þetta verði bundið skilyrðum um rekstrarhagræðingu og skipulagsbreytingu heima í héraði og framtíðarverðlagningu orkunnar.“

Síðan, frú forseti, koma niðurstöðutillögur nefndarinnar sem þegar hefur verið margminnst á, þ.e. að eigendur veitnanna geta að einhverju leyti bætt stöðu þeirra, en við vitum að þau sveitarfélög sem að þessum veitum standa eru sjálfsagt ekki allt of mikils megnug þó að það væri ekki nema vegna þess hvað þessar veitur hafa verið mikill baggi á þeim hingað til. Þannig erum við að tala um einhvers konar aðgerðir ríkisstjórnar annaðhvort í formi eiginfjárframlags frá ríkissjóði til rekstrar eða yfirtöku skulda. Þegar spurt er hvernig fjmrh. túlkar þetta ákvæði er maður að spyrja um hvaða leiðir hann sér fyrir sér, hvaða leiðir hann ætlar að kanna

og hvaða upphæðir felast í þessum leiðum, af því að opið ákvæði um jafnafmarkað efni og þetta er þessu frv. með öllu óeiginlegt og á alls ekki heima þar. Því er það með öllu eðlilegt og skiljanlegt að við sem hér sitjum og eigum að samþykkja frv. viljum fá skjalfest, þó ekki sé í frv., þá a.m.k. í umræðum, hvaða leiðir menn eru að hugsa um að rannsaka eða skoða eða semja um og hvaða upphæðir séu tengdar hverri leið fyrir sig þannig að menn standi ekki eins og angurgapar að hálfu ári liðnu og þeim komi gersamlega í opna skjöldu þær upphæðir sem þá hugsanlega verða í þessu dæmi. Þá er ég náttúrlega að hugsa til þess að þær upphæðir geta verið allverulegar.

Til að spara fjmrh. ómakið vil ég taka fram að ég held að allir sem hér eru inni geri sér grein fyrir að skuldayfirtaka fyrir næsta ár, og þá erum við að tala um næstu lánsfjárlög, þarf ekki að þýða stóran bagga fyrir ríkissjóð á komandi ári, ekki ýkja þungan, en þá erum við samt sem áður að tala um mjög stóran bagga, allt að fjögurra milljarða bagga sem komandi ríkisstjórnir þurfa þá að standa undir.