17.12.1986
Efri deild: 24. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1878 í B-deild Alþingistíðinda. (1719)
246. mál, Ríkismat sjávarafurða
Stefán Benediktsson:
Frú forseti. Ég ætla ekki að tala lengi nú. Ég tel að fundartíminn sé orðinn alldrjúgur og enn þá mikið fram undan og get tekið undir með hv. 4. þm. Vesturl. að ég sé ekki hvaða knýjandi nauðsyn ber til að afgreiða þetta mál innan um þau stóru mál sem hér eru til umfjöllunar því að það er augljóst að menn eru svo uppteknir við afgreiðslu þeirra mála, sem ekki verður hjá komist að afgreiða fyrir áramót, að það er mjög ólíklegt að þeir hafi þann tíma sem þyrfti til að sinna þessu máli sem skyldi.
Ég vildi bera fram nokkrar spurningar til hæstv. ráðh. viðvíkjandi þeim skipulagsbreytingum sem hann segir að verði á Ríkismatinu við þessi umskipti. Hafa menn þegar sett fram ákveðnar hugmyndir um í hverju þessar skipulagsbreytingar verði fólgnar, þ.e. hve margir af yfirmönnum þessarar stofnunar hætti störfum, hve margir matsmenn láti af starfi, ef þá einhverjir? Mér sýnist á bráðabirgðaniðurstöðum ríkisreiknings fyrir það ár sem er að líða að fjárveitingar til þessarar stofnunar hafi verið nokkuð vanáætlaðar í seinustu fjárlögum og að full þörf sé á að huga að skipulagsbreytingum þó ekki væri nema þess vegna. Sérstaklega virðist manni að yfirstjórn stofnunarinnar hafi tekið til sín mjög drjúgan skerf af þeim fjárveitingum sem Ríkismatinu voru ætlaðar. Í tilefni af því og má segja af gefnu tilefni langar mig til að beina þeirri spurningu beint til hæstv. ráðh. með tilliti til þess hvar í flokki hann stendur hvort t.d. standi til að fyrrv. framkvæmdastjóri Framsfl., sem nú er starfsmaður hjá Ríkismatinu, hvort hans embætti verði lagt niður og hvort embætti formanns framsóknarfélaganna í Kópavogi verði lagt niður og með hvaða sjálfskeiðungi verði gengið í að skera niður í þessari stofnun, hvort þar gangi eitt og jafnt yfir alla hvar í flokki sem þeir standa.
Það er jákvætt um þetta frv. að segja að sú hugsun sem þarna býr að baki er mjög geðþekk, en manni virðist við fyrstu sýn og eftir að hafa fylgst með umræðum, spurningum og svörum í Nd. að ekki skerist mikið af stofnuninni sem slíkri heldur sé þessi breyting aðallega þess eðlis að úr Ríkismati sjávarafurða verði nokkurs konar leynimat sjávarafurða, þannig séð að það verði haldið uppi öllum þeim umsvifum og þeirri þjónustu sem þessi stofnun hafði en undir öðrum formerkjum en nú er. Þá sé ég ekki endanlega mikinn tilgang með þessu og mundi þess vegna styðja það ef fram kæmu tillögur um að menn biðu með að afgreiða málið þar til gengið hefði verið í það að setja fram mjög ákveðið skipulagsmódel af stofnuninni eins og hún á að starfa eftir að lögin hafa verið samþykkt.