17.12.1986
Neðri deild: 23. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1886 í B-deild Alþingistíðinda. (1729)
158. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Fjármálaráðherra (Þorsteinn Pálsson):
Herra forseti. Með því að gildandi lög gera ekki ráð fyrir því að persónulega eyðslu forstöðumanna fyrirtækja eða starfsmanna sé heimilt að telja til rekstrarkostnaðar og með því að risnu má ekki telja til rekstrarkostnaðar nema hún sé sannanlega í þágu fyrirtækis samkvæmt núgildandi lögum er þessi tillaga óþörf og ég segi nei.