17.12.1986
Neðri deild: 23. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1887 í B-deild Alþingistíðinda. (1730)
158. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Halldór Blöndal:
Herra forseti. Ég tek undir þá grein sem hæstv. fjmrh. gerði fyrir atkvæði sínu. Jafnframt bendi ég á að það vekur athygli hvaða þm. það eru sem segja já við því að festa í lögin ákvæði sem þegar eru í þessum sömu lögum og ráðlegg ég þessum hv. þm. að kynna sér lögin betur, kynna sér vinnubrögð skattstofa og venjur, áður en þeir flytja eftirleiðis brtt. um skattamál. Ég segi nei, herra forseti.