17.12.1986
Neðri deild: 23. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1893 í B-deild Alþingistíðinda. (1751)
88. mál, álagning tímabundinna skatta og gjalda 1987
Svavar Gestsson:
Herra forseti. Það er ekki rétt hjá hæstv. fjmrh. að hér sé um að ræða óbreytta framlengingu á sköttum eins og þeir hafa verið. Hér er verið að breyta verulega til í ýmsum efnum og skiptir þar mestu að það er verið að ákveða með þessu að taka húsnæðisgjaldið áfram í ríkissjóð, húsnæðisgjald upp á 700-800 millj. kr. sem var lagt á með samkomulagi við stjórnarandstöðuflokkana vorið 1985 ef ég man rétt.
Ég vil leyfa mér aðeins að fara yfir frv. Það er þá fyrst ljóst að álagningarprósenta skatts á skrifstofu og verslunarhúsnæði hefur lækkað úr 1,4% í 1,1%. Ég mun svo sem fyrr flytja tillögu um að notuð verði sama álagningarprósenta skatts á skrifstofu- og verslunarhúsnæði og var, þ.e. 1,4% a.m.k. Síðan er hér gert ráð fyrir því í 6. gr. að sérstakur eignarskattur verði innheimtur og að þessir fjármunir, sem þar er gert ráð fyrir, verði innheimtir með sama hætti og var á árinu 1986. Ég vildi fá upplýsingar um það hjá hæstv. fjmrh. hvað gert er ráð fyrir að þessir skattar skili miklu í ríkissjóð á næsta ári samkvæmt þeim áætlunum sem nú liggja fyrir um tekjur ríkissjóðs á árinu 1987, sérstakur eignarskattur skv. 6. gr. Ég vildi fá upplýsingar um hvað áætlað er að hann gefi samkvæmt nýjustu tekjuáætlunum ríkissjóðs fyrir árið 1987. Hið sama á reyndar við um skatt á skrifstofu- og verslunarhúsnæði. Það væri gott að fá um það upplýsingar strax við þessa umræðu hvað gert er ráð fyrir að hann gefi á árinu 1987 samkvæmt nýjustu áætlunum um tekjur ríkissjóðs á því ári, en þær munu nú liggja fyrir.
Þá vil ég sérstaklega víkja að II. kafla, um húsnæðisgjald, en þar segir, með leyfi forseta:
„Á árinu 1987 skal leggja 1% húsnæðisgjald á söluskattsstofn allra þeirra aðila sem lög nr. 10/1960, um söluskatt, með síðari breytingum, taka til. Gilda ákvæði þeirra laga og reglugerða settra skv. þeim að fullu um álagningu og innheimtu þessa gjalds, svo og um aðra framkvæmd. Gjaldið rennur óskipt í ríkissjóð og skal því ráðstafað til útlána á vegum Byggingarsjóðs ríkisins.“
Hérna er verið að falsa staðreyndir málsins. Framlög í Byggingarsjóð ríkisins eru lækkuð í raun og veru um hærri upphæð en þessu svarar þannig að hér er verið að afla tekna fyrir ríkissjóð.
Eins og kunnugt er er gert ráð fyrir að framlög í Byggingarsjóð ríkisins lækki á næsta ári frá því sem er á þessu ári um mörg hundruð millj. kr. þrátt fyrir þann gífurlega vanda sem um er að ræða í húsnæðismálum og húsnæðislánakerfinu. Þau mál voru lítillega rædd í gær í Sþ. og verða örugglega nánar rædd við 3. umr. fjárlaga þegar hún fer fram. En það er æskilegt að fá nánari upplýsingar um það hjá fjmrh. hvað þessi liður gefur samkvæmt nýjustu tekjuspám ríkisins fyrir árið 1987, þ.e. þetta 1% húsnæðisgjald á söluskattsstofn sem gert var ráð fyrir við upphaf meðferðar málsins að gæfi um 600 millj. kr. en er örugglega mun hærri upphæð núna. Ef þetta á að merkjast Húsnæðisstofnuninni hlýtur þessi peningur að fara allur, sú hækkun sem gert er ráð fyrir núna á tekjum ríkissjóðs af þessu, í húsnæðiskerfið líka þannig að það verður að fylgja með af minni hálfu að inna eftir því hvort það er ekki alveg á hreinu að sú upphæð, sem þessi tala hækkar um samkvæmt nýjustu tekjuspám ríkisins, renni einnig til Byggingarsjóðs ríkisins á næsta ári.
Þegar ákveðið var að leggja 1% húsnæðisgjald á söluskattsstofn var einnig gert ráð fyrir að hækka sérstaklega verð á áfengi og tóbaki til að styrkja stöðu Byggingarsjóðs ríkisins. Það er hvergi gerð grein fyrir þeim fjármunum að ég best fæ séð í fjárlagafrv. né heldur í þessu frv. og er nauðsynlegt að fá um það upplýsingar hvaða fjármunir eru hér á ferðinni sem ríkið er að hirða í ríkissjóð af Byggingarsjóði ríkisins og húsbyggjendum í landinu.
Þetta atriði tel ég óhjákvæmilegt að komi fram, en vil hins vegar taka fram varðandi IV. kafla frv., um jöfnunargjald, að ég mun styðja framlengingu þess. Það er mikið álitamál hvort á að vera að framlengja til eins árs í senn gjald eins og þetta því að það hlýtur að verða lagt á um nokkurra ára skeið í viðbót. Það er algerlega óhjákvæmilegt vegna innfluttra einingahúsa. En ábendingar mínar snerta fyrst og fremst húsnæðisgjaldið og eignarskattsviðbótina skv. 6. gr.