17.12.1986
Neðri deild: 23. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1896 í B-deild Alþingistíðinda. (1757)
229. mál, frádráttur vegna fjárfestingar í atvinnurekstri
Fjármálaráðherra (Þorsteinn Pálsson):
Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til l. um breytingar á lögum um frádrátt frá skattskyldum tekjum vegna fjárfestingar manna í atvinnurekstri, með síðari breytingum. Hér er um það að ræða að fjárhæðir þessara laga eru færðar upp með tilliti til breyttra verðlagsforsendna. Í þessum breytingum felast því engar efnisbreytingar frá því sem gilt hefur, en vegna þess að ekki er í ráði að ákveða sérstaka skattvísitölu er nauðsynlegt að breyta fjárhæðum laganna með þessum hætti og ég legg til, herra forseti, að frv. verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.