17.12.1986
Neðri deild: 24. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1907 í B-deild Alþingistíðinda. (1768)

Afgreiðsla frumvarps til stjórnarskipunarlaga

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Svo stendur á um 9. mál á þessari dagskrá að það hefur alllengi verið hér til umræðu og hætt við að það fyrnist yfir þá umræðu verði henni ekki fram haldið. Vissulega er hér ærið að vinna, en það hefur verið tekið á dagskrá 12. málið, sem er alveg nýtt mál, og því hraðað og vekur það undrun í þeim önnum sem eru á sama tíma og ekki er lokið umræðu um 9. dagskrármálið.