17.12.1986
Neðri deild: 26. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1944 í B-deild Alþingistíðinda. (1790)
158. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Fjármálaráðherra (Þorsteinn Pálsson):
Herra forseti. Hv. 3. þm. Reykn. hefur gert að umtalsefni kjarasamningana sem gerðir voru í febrúar og þær yfirlýsingar sem fram fóru á milli ríkisstjórnarinnar og aðila vinnumarkaðarins af því tilefni. Það er rétt að minna á að aðilar vinnumarkaðarins komust að samkomulagi m.a. um tillögur til breytinga á húsnæðislánakerfinu. Þar var m.a. fjallað um tillögur um sérstakan húsnæðisafslátt. Í svari ríkisstjórnarinnar var ekki gefið neitt fyrirheit um þetta atriði í tillögum aðila vinnumarkaðarins um gerbreytt húsnæðiskerfi. Flestir voru á því máli að það þyrfti miklu meiri skoðunar við áður en unnt væri að gefa bindandi fyrirheit um að sú skipan yrði tekin upp í staðinn fyrir vaxtafrádrátt eða samhliða honum. Fyrir því var þeirri nefnd, sem með samkomulagi var falið að gera tillögur að lögum um nýtt húsnæðislánakerfi, falið að athuga þetta atriði sérstaklega. Niðurstaða nefndarinnar varð sú að hún náði ekki að ljúka umfjöllun um þetta mál. Hún skilaði að öðru leyti tillögum um nýtt húsnæðislánakerfi og það frv. var lagt fyrir Alþingi og samþykkt á þeim forsendum að nefndin hafði m.a. ekki haft tök á að ljúka tillögugerð eða komast að niðurstöðu í því efni. En hún tók að sér að kanna það mál frekar. Af hálfu nefndarinnar hafa ekki komið frekari tillögur um það efni.
En það er rétt að minna á að nú á haustdögum og að undanförnu hefur hafist vinna við grundvallarendurskoðun á tekjuskattskerfinu sem miðar að einföldun þess, miðar að lækkun skatthlutfalla og hækkun skattfrelsismarka og staðgreiðslukerfi í ársbyrjun 1988. Aðilar vinnumarkaðarins hafa eins og kunnugt er sett fram hugmyndir áþekkar þeim sem unnið hefur verið að í fjmrn. og það varð að samkomulagi milli ríkisstjórnarinnar og aðila vinnumarkaðarins á dögunum að starfshópur fjmrn., sem unnið hefur að þessu efni, tæki upp sérstakt samráð við aðila vinnumarkaðarins við það að fullgera hugmyndir af þessu tagi. Í þeim hugmyndum sem aðilar vinnumarkaðarins kynntu eru m.a. hugmyndir um húsnæðisafslátt þannig að ég geri ráð fyrir því, eins og áður hefur komið fram, að í því starfi verði athugun að því er þetta atriði varðar haldið áfram, en auðvitað í nýju ljósi því að menn eru að ræða um allt annars konar tekjuskattskerfi eftir að hugmyndir um grundvallarbreytingar af því tagi sem rætt hefur verið um hafa fengið svo víðtækan stuðning sem raun ber vitni.
Ég hygg, herra forseti, að þetta skýri það mál sem hér hefur verið gert að umtalsefni.