17.12.1986
Neðri deild: 26. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1948 í B-deild Alþingistíðinda. (1794)
158. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Guðmundur Einarsson:
Herra forseti. Nú er klukkan orðin tólf og gott betur og hér er nýbúinn að koma upp Páll Pétursson, þingflokksformaður græna gengisins á Alþingi, og hann telur að hér þurfi margt að ræða. Nú langar mig að spyrja, herra forseti, hvort til er samkomulag og hvaða fyrirætlanir eru um málaafgreiðslur og fundahöld. Nú er miðvikudagur og það er talsvert eftir af þessari viku. Mér finnst spurning hvað menn ætla að vera lengi áður en beinlínis sér fyrir endann á afgreiðslu málanna. Mig langaði að spyrja forseta hvaða fyrirætlanir hann hefði um þessi mál.