17.12.1986
Neðri deild: 26. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1949 í B-deild Alþingistíðinda. (1797)

158. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Frsm. 2. minni hl. fjh.- og viðskn. (Svavar Gestsson):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. forsrh. fyrir þau svör sem hann gaf varðandi meðferð skattsvikaskýrslunnar. Það er nokkuð sérkennilegt að það skuli vera hann sem svarar þeim fsp. sem eru bornar fram í þinginu um það efni en ekki hæstv. fjmrh., en það kemur væntanlega í sama stað niður.

Ég vil einnig segja að ég tel að það sé mikilvægt að þessi umræða hefur leitt til þess að formaður fjh.- og viðskn. þessarar hv. deildar, hv. þm. Páll Pétursson, hefur lýst því yfir að hann muni beita sér fyrir því að allir skattstjórar landsins verði kallaðir fyrir fjh.- og viðskn. þessarar deildar til að fara yfir skattsvikaskýrsluna og taka í nefndinni þá væntanlega ákvörðun um málafylgju í samræmi við niðurstöðu viðræðna við þessa skattstjóra. Ég tel að þessi umræða hafi þess vegna leitt til mjög ákveðinnar og jákvæðrar þýðingarmikillar niðurstöðu og skal ég því ekki hafa mína athugasemd lengri, herra forseti.