17.12.1986
Neðri deild: 26. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1950 í B-deild Alþingistíðinda. (1799)
158. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Fjármálaráðherra (Þorsteinn Pálsson):
Herra forseti. Vegna ummæla hv. 4. landsk. þm. er rétt að taka fram að það hefur áður verið frá því greint á hinu háa Alþingi og opinberlega með öðrum hætti hver hafa verið viðbrögð við þeirri skýrslu sem lögð var fram af þeirri nefnd sem rannsakaði skattsvik á vegum fjmrn. Eitt af þeim atriðum sem bent var á var að taka upp í hegningarlög refsiákvæði vegna skattsvika. Fjmrn. beindi því til dómsmrn. að taka þetta mál til meðferðar og það var frá því greint í sumar sem leið opinberlega í blöðum þegar þeirri ósk var beint til dómsmrn. sem fer með meðferð þeirra laga og eðli máls samkvæmt hlýtur að bera fram lagabreytingar er lúta að almennum hegningarlögum. Það hefur líka verið frá því greint opinberlega áður að embætti ríkisskattstjóra hefur verið að athuga þær ábendingar um breytingar á bókhaldslögum sem þessi nefnd taldi að taka þyrfti til skoðunar. Það hefur líka verið dregið fram að það hefur verið, og komið fram reyndar á Alþingi í tillögum, unnið að því að breyta skattkerfinu á þann veg að fækka undanþágum. Það hafa þegar verið lögð fram frv. að þessu leyti og er verið að vinna að breytingu á löggjöf að öðru leyti sem miðar að þessu. En það var einmitt það atriði sem nefndin lagði einna mesta áherslu á að fækka undanþágum í skattkerfinu því að þær opnuðu fyrst og fremst möguleika til undanskota. Allt þetta hefur áður komið fram og verið skýrt og sum atriði þegar komið til umræðu á hinu háa Alþingi í formi lagafrv. um breytt skattkerfi.