17.12.1986
Neðri deild: 26. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1952 í B-deild Alþingistíðinda. (1802)
253. mál, heilbrigðisþjónusta
Svavar Gestsson:
Herra forseti. Snemma árs 1983 lá fyrir samningur milli Sjúkrasamlags Reykjavíkur, Læknafélags Reykjavíkur, heilbr.- og trmrn. og fjmrn. um fyrirkomulag heilsugæslu í Reykjavík og á þeim stöðum öðrum sem þá um nokkurra ára skeið höfðu þrátt fyrir lögin frá 1973 búið við svokallað heilsuverndarkerfi varðandi forvarnir og heilsugæslu. Þegar núv. ríkisstjórn tók við setti fyrrv. hæstv. heilbrmrh. Matthías Bjarnason af stað athugun á þessu máli fyrir sitt leyti, sem er eðlilegt þegar ráðherra tekur við störfum því hér er ekki um að ræða einfalt mál út af fyrir sig, og þeirri athugun mun hafa verið lokið á árinu 1984, seint á því ári. Vegna þess hversu seint var frá því máli gengið á því ári var heilsuverndarkerfið enn einu sinni framlengt í árslok 1984.
Síðan gerist það að skipt er um heilbrmrh. á árinu 1985 í hinum mikla stólaleik Sjálfstfl. og heilbrmrh. Ragnhildur Helgadóttir fer enn af stað, skoðar málið, veltir því fyrir sér. Frv. sem hún gat um áðan er búið að liggja tilbúið í heilbrmrn. mjög lengi, lengur en hæstv. ráðh. hefur setið í embætti, frá því að hæstv. fyrrv. heilbrmrh. gegndi því starfi, Matthías Bjarnason. Auðvitað hefði verið hægt að flytja frv. í þinginu ef það er samstaða um það í stjórnarflokkunum. Ég veit reyndar ekkert um það, en hæstv. ráðh. talaði áðan eins og það væri samstaða um málið í stjórnarflokkunum, a.m.k. um að leggja það fram eftir hátíðarnar.
En í staðinn fyrir að leggja málið fram hér í haust þannig að þinginu gefist kostur á að taka á þessu máli - ég reyndar veit að í því eru mörg atriði sem ég fyrir mitt leyti tel ástæðu til að setja spurningarmerki við - og reyna að láta þessi mál bera að með eðlilegum hætti og reyna að fá upp í þinginu eðlilega umræðu um heilbrigðismál og heilsugæslu alveg sérstaklega, sem er full þörf á og allt of sjaldan rætt á hv. Alþingi, er þetta framlengingarfrv. hingað komið enn þá einu sinni og lagt til að framlengt verði óbreytt þetta gamla heilsuverndarkerfi út næsta ár.
Þetta eru ekki mjög góð vinnubrögð og hefði verið betra að reyna að ná utan um það að heilsugæslan yrði samfelld í landinu öllu. Það er hálfgert ólán það heilsuverndarkerfi sem hér er á þéttbýlissvæðinu, t.d. vegna þess að greiðslufyrirkomulag er þar allt annað en í hinu almenna heilsugæslukerfi. Ég hygg reyndar að það að taka upp heilsugæslu í Reykjavík samkvæmt gildandi lögum um heilbrigðisþjónustu, og það hefur reyndar verið sannað, værí ódýrara fyrir Reykjavíkurborg en það kerfi sem nú er. En það er auðvitað ekki það sem hæstv. heilbrmrh. á eingöngu að horfa á heldur þjónustan sem slík. Það er hæstv. ráðh. skylt miðað við það ráðuneyti sem hún gegnir.
En allt um það. Það er útilokað annað en að draga þá ályktun að þetta mál sé frosið fast. Það er kannske best úr því sem komið er að þessi ríkisstjórn sé ekki mikið að rembast við að koma á þessari kerfisbreytingu í heilbrigðismálum. Það verði þá hlutverk næstu stjórnar að taka á því verki.
Þegar þetta mál var síðast hér til meðferðar greiddi ég atkvæði gegn frv. einn þm. í hv. Nd. Ég efast um að ég geri það núna þegar það kemur til atkvæða heldur láti það fara í gegn án þess. En ég bendi á að í rauninni væri þegar í stað hægt að taka upp heilsugæslukerfi samkvæmt lögunum um heilbrigðisþjónustu vegna þess að allar forsendur eru til. Þó að þetta frv. yrði ekki samþykkt, framlengingarfrv. á heilsuverndarkerfinu, gerist ekkert annað en að nýja heilsugæslukerfið, sem var komið upp á landsbyggðinni fyrir bráðum 13 árum, byrjaði í Reykjavík frá og með næstu áramótum eða einhvern tímann á næsta ári.
Ég held að það sé tvímælalaust að Reykvíkingar búa við slaka þjónustu að því er varðar heilsugæslu. Það eru þúsundir manna hér án sjúkrasamlagslæknis og fjöldinn allur af fólki sem hefur ekki aðgang að þeim heilsugæslustöðvum sem þó eru til. Reykvíkingar hafa þarna dregist aftur úr. Þess vegna eru heilbrigðisrök fyrir því. Rök frá heilbrmrn. séð ættu að vera að taka upp hið nýja kerfi hér strax frá og með næsta ári. En því er ekki að heilsa. Það hefur verið haldið þannig á málinu og það er ekkert annað að gera en að horfast í augu við að málið hefur verið afvelta allan tímann frá því að þessi stjórn tók við þó svo að það hafi verið tilbúinn samningur milli allra hlutaðeigandi aðila, sjúkrasamlagsins, Læknafélags Reykjavíkur, heilbrmrn. og fjmrn., um þetta mál.
Herra forseti. Ég vildi koma þessum athugasemdum á framfæri á þessum næturfundi.