17.12.1986
Neðri deild: 26. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1955 í B-deild Alþingistíðinda. (1805)

253. mál, heilbrigðisþjónusta

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra (Ragnhildur Helgadóttir):

Herra forseti. Mér er afskaplega ljúft að svara fsp. hv. þm. Það er ekkert því til fyrirstöðu.

Í fyrra var ástæðan sú að ég hafði ekki sannfærst um gildi frv. vegna þess að ég taldi þá að það gætu og ættu alveg að geta þrifist hlið við hlið þessi tvö kerfi, annars vegar númerakerfið svokallaða sem afskaplega margir Reykvíkingar virðast kjósa og hins vegar heilsugæslustöðvar fyrir þá sem það kysu. Enn fremur er fjöldi fólks sem virðist kjósa að leita beint til sérfræðinga þó að enginn skortur sé á heimilislæknum í Reykjavík og menn eigi rétt á að fara í heilsugæslustöðvar. Engu að síður hefur mér fundist, eftir því sem ég hef lengur haft þetta umrædda frv. í skápnum, að það ætti að leggja fram. Það er alveg rétt að það var tilbúið þegar ég settist í ráðherrastól, en ég var ekki nægilega sannfærð um málið sjálf þá, enda vita menn að það var skammur tími til stefnu þá. Hitt er annað mál að það hefur mjög verið kallað eftir þessu frv. og m.a. á hv. Alþingi og frv. er ekkert leyndarmál og mér finnst sjálfsagt að Alþingi fái um það að fjalla. Það var greint frá því á síðasta ríkisstjórnarfundi að málið væri samþykkt til flutnings í þeim stjórnarflokki sem enn þá hafði ekki afgreitt það, sem var Framsfl., og ég geri ráð fyrir að því hafi valdið annir í þeim flokki núna undanfarnar vikur. Ég kann ekki við annað, þegar svona stórt frv. er lagt fyrir Alþingi með viðamikilli greinargerð, en það sé lagt fram í skikkanlegu formi almennilega prentað úr Gutenberg. Þess vegna hefur því ekki verið útbýtt. En ef hv. þm. vill skal ég gjarnan senda honum þetta fyrir jól svo að hann hafi það sem jólalesningu þó að það sé einungis fjölritað. Þessu valda þessar tæknilegu ástæður.