17.12.1986
Neðri deild: 26. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1957 í B-deild Alþingistíðinda. (1809)

253. mál, heilbrigðisþjónusta

Steingrímur J. Sigfússon:

Herra forseti. Aðeins örfá orð út af síðustu ræðu. Ég hygg að það sé ekki mikill meiningarmunur milli okkar, mín og hv. 4. landsk. þm., og hafi ég í mínu máli verkað á hann sem einhver sérstakur skipulagshyggjumaður í þessum efnum var það ekki meiningin. Ég bið enn fremur hv. 4. landsk. þm. að rugla ekki saman byggingum og heilsugæslustöðvum því að þetta tvennt þarf ekki endilega að fara saman. Það er ekki formið heldur gæði þjónustunnar og það hversu árangursrík hún er sem vakir fyrir mér.

Ég nefni að í heilsugæslustöðinni á Akureyri var valin sú leið af heimamönnum að fara ekki út í byggingu heldur taka á leigu húsnæði og allir eru sammála um að það hafi verið skynsamlegur kostur. Slíkt væri hægt að viðhafa víðar. Menn mega því ekki rugla saman steinsteypu og heilsugæsluþjónustu.

Ég held hins vegar að það hafi vissa kosti að visst sameiginlegt skipulag sé yfir öllu landinu, a.m.k. hvað greiðsluformið varðar, og að heilsugæslustöðvarnar færist inn undir bein fjárlög og útgjöldin komi þeim megin í gegn eins og í heilsugæslukerfinu og númerakerfið verði aflagt a.m.k. sem slíkt. Ég bendi hv. 4. landsk. þm. á að það er að mörgu leyti hægt að sameina það persónulega kerfi sem í númerakerfinu felst, þ.e. þau persónulegu samskipti læknis og sjúklings sem það kerfi vissulega hefur í för með sér, með því að útfæra heilsugæslukerfið eins og gert hefur verið á heilsugæslustöðinni á Akureyri þar sem almenningur velur sér sinn sérstaka lækni þó að að sé undir stöðinni og hefur fyrst og fremst samskipti við hann eða hans afleysingamann. Eitt af því sem menn fundu þessu til foráttu á sínum tíma var sá misskilningur að heilsugæslukerfið hefði í för með sér að menn hefðu engan sérstakan lækni til að leita til heldur mættu inn á stöðina og yrðu að fara til þess læknis sem væri laus þá og þá stundina. Það var hægt að hugsa sér að þetta yrði þannig, en á Akureyri fóru menn aðra leið og ég tel að hún hafi gefist mjög vel. Hv. þm. vitnaði til þess að menn ættu að skoða hlutina í ljósi reynslunnar. Því nefndi ég einmitt Akureyri og breytinguna þar sem ég hygg að hafi tekið gildi um áramót 1985. Samkvæmt minni bestu vitneskju er reynslan af þeirri breytingu jákvæð, bæði hvað varðar viðhorf starfsfólks og viðskiptavina stöðvarinnar. M.a. þess vegna held ég að það sé bagalegt og það sé ástæða til að harma að frv. um frestun er enn einu sinni flutt hér fyrir Reykjavíkursvæðið.