22.10.1986
Efri deild: 5. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 236 í B-deild Alþingistíðinda. (183)
9. mál, lágmarkslaun
Stefán Benediktsson:
Frú forseti. Flm. þessa frv. dró sjálf í máli sínu nokkuð í efa rétt löggjafans til að blanda sér í frjálsa samninga með þeim hætti sem hér er í raun og veru gert ráð fvrir. Maður gæti því af þessu tilefni velt því fyrir sér hvenær íhlutun löggjafans í beinar launaákvarðanir á almennum vinnumarkaði hafi sannanlega orðið til góðs og gæti einhver bent á slík dæmi treysti það að nokkru leyti í stöðu frv. Ég vil til að taka af allan vafa lýsa því yfir strax að ég er andvígur frv. um lágmarkslaun.
Í lögum nr. 55 frá 1980. um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda, stendur í 1. gr.: „Laun og önnur starfskjör sem aðildarsamtök vinnumarkaðarins semja um skulu vera lágmarkskjör fyrir alla launamenn í viðkomandi starfsgrein á svæði því er samningurinn tekur til. Samningar einstakra launamanna og atvinnurekenda um lakari kjör en hinir almennu kjarasamningar ákveða skulu ógildir.“
Það er deginum ljósara að þessi lagagrein tryggir mönnum ekki neina ákveðna krónutölu í laun, en hún felur ábyrgðina í hendur samningsaðilum um að ákveða hver lægstu launin eru eða skuli vera og tekur af allan vafa um að ekki megi greiða lægri laun en þau sem um er samið. Ég vil líka taka af allan vafa um að ekki er ég frekar en trúlega nokkur hér inni sannfærður um að 19 þús. kr. lágmarkslaun séu mannsæmandi, langt í frá, en það breytir því ekki að þetta eru þau laun sem aðilar vinnumarkaðarins sömdu um. Allir kjarasamningar byggja síðan á vissan hátt á lægsta þrepi launastigans. Nú vitum við að launastiginn er afskaplega langur og teygður og tilfellið er að löggjafinn gæti með ýmsum aðgerðum breytt því ástandi. T.d. mætti með breyttri skattalöggjöf hafa þau áhrif á samninga að launastigi yrði miklu einfaldari og styttri en hann er. Þá á ég við skatta sem lagðir yrðu á á svipaðan hátt og útsvar. þ.e. ein álagsprósenta. eitt gjald á öll laun fyrir ofan eitthvert ákveðið lágmark. Það hefði náttúrlega gífurleg áhrif á þær launakröfur sem frammi eru í samningum í dag því að launakröfurnar taka mjög mikið tillit til þess hvaða skatta menn verða síðan að borga af tekjum sínum.
Þetta frv. segir: „Óheimilt er að greiða lægri grunnlaun fyrir 40 dagvinnustundir á viku en sem nemur 30 þús. kr. á mánuði miðað við framfærsluvísitölu 1. sept. 1986.“
Maður verður að spyrja þeirrar spurningar: Hvaða laun er verið að tryggja með þessum hætti? Það stendur að vísu „grunnlaun fyrir 40 dagvinnustundir“ Eru þetta lágmarkslaun fyrir dagvinnu eða tekjulágmark? Á að lágmarka dagvinnuna með þessum hætti eða hámarka að viðbættum bónusgreiðslum eða ekki? Þetta hlýtur að snerta bónusgreiðslur því að í kjarasamningum er samið við það fólk sem vinnur á bónus um ákveðnar dagvinnutekjur og síðan um ákveðin bónushlutföll og það skoðað hvað með öðru við þá niðurstöðu sem menn fá í samningum.
Í fjölda kjarasamninga er fjallað um hluti eins og vaktaálag, ferðakostnað, flutningskostnað, fæðisgjald, vaktaskiptagjald og þar fram eftir götunum og álit eru þetta ákveðin margfeldi af stundalaunum í dagvinnu. Þetta er einungis nefnt hér vegna þess að sá sem hér stendur hefur sjálfur mjög oft hugleitt að setja lög um lágmarkslaun og endar alltaf á þeirri niðurstöðu að löggjafinn geti alls ekki bætt um betur fyrir verkalýðshreyfingunni eða verkalýðsforustunni einfaldlega vegna þess að þó að lög væru sett um þessa hluti er ekkert sem tryggir að við upplifum ekki það, sem venjulega gerist í öllum samningum, að þessi lágmarkslaun einfaldlega margfaldi sig upp allan launastigann. Maður getur sagt: Það er samviskuspurning verkalýðshreyfingarinnar hvernig hún tekur við þessu. Við erum þá að gera ráð fyrir því að það gerist með mjög skjótum hætti, en ég er að benda á að þetta getur gerst hægt. Þetta getur gerst á 1-2 árum, á lengri tíma. Þá stöndum við allt í einu uppi með að þessi lágmarkslaun eru alveg jafnlág í hlutfalli við önnur laun og þau eru í dag ef verkalýðsforustunni og verkalýðshreyfingunni hefur ekki tekist að ná betri tökum á samningum en hefur tekist hingað til. Ég hef talið og hef m.a. mælt fyrir því hér að það séu önnur ráð sterkari til að bæta aðstöðu þess fólks sem hér er verið að tala um og þau ráð felist í því að auka rétt þess til að semja um kjör sín. Þar sem verkalýðsforustunni hefur ekki tekist að hækka laun fólks hafi fólk bæði réttindi og skyldur til að semja á sínum vinnustöðum. Við vitum að allt það launaskrið sem verið er að tala um er mestan part þannig tilkomið að þeir menn í fyrirtækjunum sem hafa aðstöðu til að knýja fram hjá sjálfum sér launahækkanir notfæra sér hana og vinnuveitendurnir viðurkenna hana. En það eru alltaf í hverju fyrirtæki enn þann dag í dag svo og svo margir aðilar sem ekki hafa þessa aðstöðu. Þessum aðilum verðum við að fá í hendur tæki til að skapa sér samningsstöðu. Þar með yrði trúi ég miklu meiri árangri náð en með frumvarpsflutningi sem þessum.
Þegar menn gengu frá samningum t.d. í vetur var reiknað með því hjá bónusfólki að bónusinn væri um það bil sama upphæð eða sambærileg upphæð og mánaðarlaunin. Það var reiknað með því að sá sem væri með um 20 þús. kr. í mánaðarlaun næði um 20 þús. kr. í bónus. Þá var reyndar verið að tala um hámarksafköst. Sá aðili sem hefur slíka samninga í höndunum hlýtur að krefjast þess, ef löggjöf eins og þessi kemur til, að bónusinn vegi jafnmikið í hans tekjum og hann gerir í dag. Það þýðir náttúrlega að hann er skyndilega, a.m.k. á launaseðli, kominn fram úr ýmsum öðrum innan sama samningshóps. Við vitum alveg hvaða afleiðingar það hefur í för með sér.
Við vorum að fá mikla launahækkun um daginn sem er ákveðin snjóboltaáhrif af þeim samningum sem á undan eru gengnir. Ég á eftir að sjá framan í þann þingmann sem afsalar sér þessum launum eða hluta þeirra, telur sig ekki eiga fulla kröfu til þeirra.
Af því að flm. minntist á Bandaríkin í þessu tilviki held ég að hún mótmæli mér ekki í því að þeir sem fjallað hafa um gagnsemi lágmarkslaunanna í Bandaríkjunum eru flestallir, a.m.k. sem ég hef skoðað og kynnt mér, á þeirri skoðun að lágmarkslaun í Bandaríkjunum hafi haft þau áhrif að samningsaðilar endi á þessum lágmarkslaunum sem nokkurs konar hámarkslaunum, þ.e. lögbundin lágmarkslaun komi út sem ákveðin hámörkun krafna. Atvinnurekendur segja: Það eina sem mér ber skylda til er að uppfylla kröfuna um lágmarkslaun. Allt sem er þar yfir er umframframlag, umframgeta sem ég ekki þarf að standa skil á af því einfaldlega að lögin biðja ekki um meira.
Ég held að ef svona frv. væri lagt fram í fullri alvöru væri ekki um neitt annað að ræða en gera það með svipuðum hætti og hér kom fram einhvern tíma á þingi. þ.e. frv. um laun á Íslandi sem væru nánast söm og jöfn fyrir alla, eða þá að láta fylgja með frv. sem þessu líka greinar um hvað væru hámarkslaun á Íslandi.
Ég held að frv. sem þetta geti því miður ekki bætt úr þeim ágöllum samningakerfisins sem við horfum upp á milli aðila vinnumarkaðarins. Ég held að þetta sé ekki leiðin til að leiðrétta það misrétti sem fram kemur í niðurstöðum samninganna. Ég held að aðrar leiðir skili meiri árangri. Ég held að sú leið sem skili mestum árangri sé sú að færa samningsréttinn með fullum réttindum og skyldum í hendur fólks á vinnustöðunum.