18.12.1986
Sameinað þing: 34. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1965 í B-deild Alþingistíðinda. (1831)
185. mál, kaupleiguíbúðir
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir:
Herra forseti. Í fyrri hluta þessarar umræðu um till. Alþfl. um kaupleiguíbúðir bar hv. þm. Guðrún Agnarsdóttir fram fáeinar spurningar til flm. og við þeim fengust ekki og hafa ekki enn fengist fullnægjandi svör. Því vil ég gera hér örfáar athugasemdir við þessa till.
Till. gerir ráð fyrir að menn geti fengið 100% lán til kaupa á íbúðarhúsnæði, þ.e. 85% úr Byggingarsjóði verkamanna og 15% frá sveitarfélögum. Till. er greinilega ætluð láglaunafólki og virðist, eftir því sem fram hefur komið hjá hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur, eiga að taka við af verkamannabústaðakerfinu. Það er út af fyrir sig gott og blessað því eins og fram hefur komið, m.a. hjá hv. þm. Kristínu Ástgeirsdóttur, eru það allmargir sem ekki ráða við þau kjör sem verkamannabústaðakerfið býður upp á.
Skv. þeim lögum sem samþykkt voru í vor um Húsnæðisstofnun ríkisins er gert ráð fyrir að í undantekningartilfellum verði lánað allt að 100% af kostnaðarverði til íbúða í verkamannabústaðakerfinu, þ.e. 90% til 43 ára og 10% til þriggja ára. Þessu eiga þeir einir rétt á sem sérstaklega stendur á fyrir. Auðvitað er betra fyrir fólk að fá lán til lengri tíma eins og þessi till. gerir ráð fyrir. En, og það er dálítið stórt en, nógu erfitt hefur verið að fjármagna verkamannabústaðakerfið undanfarið ár svo að sérstaklega þarf að taka til hendinni ef þetta á að ganga upp hvað varðar fjármögnunarþáttinn. Það er því erfitt að ímynda sér hvernig kaupleiguíbúðakerfið á að ganga við hliðina á verkamannabústaðakerfinu, en það hefur engin tillaga komið fram frá hv. flm. þessarar þáltill. um að leggja verkamannabústaðakerfið niður. Spurningin snýst þá um: Hverjir eiga að fá 100% lán og hverjir eiga að fá 85% lán? Þessari spurningu hefur ekki verið svarað.
Í öðru lagi er erfitt að átta sig á hver er hinn raunverulegi tilgangur tillögunnar. Í henni er gert ráð fyrir 100% láni til fólks á meðan núverandi kerfi gerir ráð fyrir 70% að hámarki til nýbygginga. Till. gerir ráð fyrir að allir geti gengið að þeim kjörum sem hún býður þannig að ásókn í þau kjör sem hún býður yrði mikil. Till. gerir ráð fyrir að ráðstafa eigi tilteknum fjölda íbúða til þeirra sem byggðu eða keyptu húsnæði eftir 1980 og eiga í greiðsluerfiðleikum. Það veitir ekki af því að koma til móts við það fólk, en þetta er það eina sem till. gerir ráð fyrir að verði stýrandi við úthlutun þessara lána.
Það er fjarri mér að mæla gegn því að fólk fái lánafyrirgreiðslu til kaupa á íbúðarhúsnæði, en ekki get ég gert ráð fyrir og ekki getur það talist eðlilegt að sumir fái 70% lán en aðrir 100% lán án þess að frekari markmið komi fram. Það kerfi, sem þessi till. gerir ráð fyrir, er því nánast einungis séreignaform og vart hægt að tala um að hér sé um aukningu á leiguhúsnæði að ræða. A.m.k. má alveg eins gera ráð fyrir að meiri hluti íbúðanna verði keyptur en aðeins minni hlutinn í raunverulegri leigu.
Það er að öllu leyti réttlætanlegt að leiguhúsnæði sé með hagstæðari lánskjörum en annað húsnæði. Í fyrsta lagi er aðeins einu sinni lánað til hverrar íbúðar og fólk sem þar býr nýtur ekki eins mikils skattaafsláttar og þeir sem kaupa húsnæði. En að mismunandi kjör gildi fyrir fólk sem er að kaupa á almennum markaði er hins vegar erfitt að réttlæta nema um félagslega hjálp sé að ræða, en því gerir till. ekki ráð fyrir.
Að óbreyttu er sennilega heppilegra að auka byggingu leiguhúsnæðis, enda höfum við Kvennalistakonur flutt till. um það hér og miðað þá við c-lið í þeirri grein laga um Húsnæðisstofnun sem tekur til byggingarhúsnæðis á vegum félagasamtaka. Jafnframt er sjálfsagt að endurskoða núgildandi kerfi með tilliti til þessarar till. svo og annarra hugmynda sem fram hafa komið.
Í heildina er heldur margt óljóst í framkvæmd þessarar till. og margt sem enn þarf athugunar við og sá grunur læðist að mér að þessi till. hafi engan veginn verið hugsuð til enda. A.m.k. er þörf á víðtækum breytingum á núverandi kerfi ef hún á að geta gengið upp. Ég held að það sé eðlilegra, að áður en menn flytja slíka till. geri þeir sér grein fyrir því hvernig þeir hugsa sér að hún gangi upp miðað við það kerfi sem fyrir hendi er og geri þá jafnframt nauðsynlegar breytingar á því kerfi.