18.12.1986
Efri deild: 26. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1975 í B-deild Alþingistíðinda. (1856)

Afgreiðsla mála í efri deild

Skúli Alexandersson:

Virðulegi forseti. Það er líkast til um hálfur annar tími eða svo kannske heldur meira, síðan sjútvn. fjallaði um 246. mál, Ríkismat sjávarafurða. Ég hef fyrir nokkru síðan lagt fram nál. mitt til skrifstofustjóra og það er verið að ganga frá því. Ég fer þess á leit að umræðu um það verði frestað þar til nál. hefur verið dreift.