18.12.1986
Neðri deild: 27. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1982 í B-deild Alþingistíðinda. (1873)
207. mál, Iðnlánasjóður
Frsm. iðnn. (Páll Pétursson):
Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. á þskj. 393 um breytingu á lögum um Iðntæknistofnun Íslands. Þetta er álit iðnn. Hún hefur tekið þetta frv. til meðferðar og mælir með að það verði samþykkt. Undir það skrifa Páll Pétursson, Friðrik Sophusson, Guðmundur Einarsson, Hjörleifur Guttormsson, Gunnar G. Schram og Ingvar Gíslason.
Hér er um að ræða heimild til Iðntæknistofnunar að eignast minnihlutaaðild í fyrirtækjum sem endurgjald fyrir veitta þjónustu.