18.12.1986
Neðri deild: 28. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1993 í B-deild Alþingistíðinda. (1905)

229. mál, frádráttur vegna fjárfestingar í atvinnurekstri

Guðmundur Einarsson:

Herra forseti. Ég tel orðið alveg ljóst að hv. þm. Ólafur Þ. Þórðarson hefur unnið hið mesta þarfaverk þegar hann nú, í þeim miklu önnum sem þingið stríðir við og þegar mikil hætta er á því að menn láti í hraðanum mál fram hjá sér fara, beinir kastljósi deildarinnar að þessu þarfa máli. Það er sem sagt komið í ljós, eftir að hv. formaður nefndarinnar svaraði fsp. mínum, að þessi tilraun í skattlagningu, sem sett var á fót haustið 1983, hefur á engan hátt verið metin. Það hefur ekki verið gerð tilraun til að meta hana til gagnsemi. Það hafa ekki verið gerðar kannanir á því hvernig á henni haldist skattalega. Hún er síðan samþykkt ár eftir ár og hækkuð eins og ýtrustu hækkunarforsendur leyfa án þess að menn hafi hugmynd um hvernig hún nýtist fólki eða fyrirtækjum til þess gagns sem henni var ætlað. Ég held að hér hafi komið í ljós hinn mesti ljóður á starfsemi deildarinnar og vinnubragða í nefnd. Ég tel það óþolandi að mál sem einu sinni kemst inn á þennan hátt og verið er að fitja upp á til nýbreytni komist upp á færiband sjálfvirkrar afgreiðslu ár eftir ár án þess að nokkur tilraun sé gerð til að meta hversu vænlegt sé að halda því áfram. Ég verð að segja að eftir þær upplýsingar sem hér hafa komið fram finnst mér alger ofrausn að hækka þessar frádráttarheimildir í fyrsta lagi með tilliti til hinnar miklu fjárþarfar ríkissjóðs sem birtist nú á hverjum degi í þeim gögnum sem hér eru lögð fram, með tilliti til þess að það liggja ekki fyrir neinar upplýsingar um að þessi frádráttarheimild hafi nýst atvinnurekstrinum í landinu til eflingar og með tilliti til þess í þriðja lagi að það eru ekki nein gögn fyrirliggjandi um skattalega meðferð, hvernig skattstjórum og skattyfirvöldum gengur að gegnumlýsa skattalega meðferð þessa máls. Mér finnst algerlega óþörf rausn að hækka þessa heimild og mér finnst undarlegur skortur á forvitni, undarlegur daufingjaháttur af hálfu ríkisstjórnarmeirihlutans að taka þetta mál og fleyta því skoðunarlaust í gegn.

Ég verð að taka undir orð hv. þm. Ólafs Þ. Þórðarsonar um að ég sé ekki hina knýjandi nauðsyn á því að afgreiða þetta mál. Það hefur ekki komið fram í neinum málflutningi af hálfu ríkisstjórnarinnar að það sé brýnt mál og meðan ég fæ ekki gögn í hendurnar um að hér sé á ferðinni gott mál, sem hafi þegar orðið til góðs og að það hafi ekki ýtt undir þann undandrátt undan skattframtölum sem lýst var í deildinni í nótt og lesið þá upp úr skattsvikaskýrslunni, sé ég ekki ástæðu til að styðja þetta mál. Þvert á móti.