18.12.1986
Neðri deild: 29. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2003 í B-deild Alþingistíðinda. (1955)

24. mál, lánsfjárlög 1987

Svavar Gestsson:

Virðulegi forseti. Þannig háttar til með þetta mál að það er nú til 1. umr. og samt hefur fjh.- og viðskn. hv. deildar tekið málið til meðferðar á fimm tíma fundi sem haldinn var í morgun þar sem fjöldi aðila, fulltrúar stofnana, lánasjóða og annarra slíkra aðila, var kallaður fyrir til viðtals.

Það kom fram í máli fulltrúa Þjóðhagsstofnunar að hér væri á ferðinni ríkisfjármálastjórn sem vafalaust hefði í för með sér stórfellda þenslu á næsta ári. Það er talið að öll verðlagsmarkmið stjórnvalda, sem sett eru í frv., og aðila vinnumarkaðarins séu í verulegri hættu. Þegar maður spurði þessa aðila hvort þeir teldu að verðbólguforsendur aðila vinnumarkaðarins og ríkisstjórnarinnar og fjárlagafrv. stæðust fyrir 1987 svöruðu þeir með góðlátlegu brosi. Það var bersýnilegt að þeir höfðu ekki mikla trú á því að þessar forsendur stæðust miðað við þá miklu skuldasöfnun ríkissjóðs sem gert er ráð fyrir skv. frv. til lánsfjárlaga.

Í 1. gr. frv. er gert ráð fyrir að lántakan á árinu 1987 verði alls um 1,7 milljarðar kr., en samkvæmt upplýsingum sem heyrst hafa í dag má gera ráð fyrir að þessi tala verði ekki 1700 millj. kr. heldur kannske um 3000 millj. kr. Þannig er alveg ljóst að ríkissjóður gengur nær lánsfjármarkaðnum en hann hefur nokkru sinni áður gert. Og það kom fram í morgun ótti hjá talsmönnum sjóða og stofnana yfir því að þeir yrðu neyddir til að taka innlend lán. Þeir vildu frekar taka erlend lán. Þannig er staðan sem blasir við í þessu mikla góðæri, sjóðandi samkeppni á markaðnum um lánsfé sem ríkissjóður hefur forustu um.

Þetta frv. eins og það lítur nú út eftir meðferð í Ed. er í rauninni þegar orðin markleysa vegna stórkostlegra breytinga á forsendum Þjóðhagsstofnunar fyrir lánsfjárlögum og ríkisbúskapnum árið 1987. Þess vegna er í rauninni ástæðulaust að ræða þetta mál ítarlega og mun ég ekki taka langan tíma í að fara yfir það nú, aðeins nefna örfá atriði:

1. Ég flyt brtt. um að fella niður 18. gr. frv. um Framkvæmdasjóð fatlaðra.

2. Ég tel óhjákvæmilegt að 22. gr. frv. verði breytt þannig að það sé skýrt hvort það er Ferðamálasjóður eða ferðamálaráð sem á að hirða þær fáu krónur sem ganga til ferðamála á næsta ári.

3. Þá mun ég leggja til að 26. gr. frv. falli niður. Ég bið hæstv. fjmrh. að leggja við eyrun augnablik. Það hefur aldrei gerst að Atvinnuleysistryggingasjóður hafi verið skertur. Hér er gert ráð fyrir því í fyrsta sinn að skerða þennan sjóð. Mér segir svo hugur um að þær forsendur sem byggt er á við afgreiðslu fjárlaga og í 26. gr. séu með þeim hætti að þessi skerðing skili ríkissjóði varla nokkurri einustu krónu. M.a. þess vegna skora ég á hæstv. fjmrh. að taka til mjög alvarlegrar athugunar að fella þessa grein niður, en sérstaklega þó vegna þess að hér er um að ræða grundvallaratriði í mínum huga. Að því er mig varðar a.m.k. getur ekki orðið neinn friður um þetta frv. ef menn ætla sér að taka Atvinnuleysistryggingasjóð og skerða hann í fyrsta sinn í sögunni á árinu 1987.

Í fyrra var lagt fram frv. um skerðingu Atvinnuleysistryggingasjóðs og það var tekið út í fyrri deild.

Ég skora á hæstv. fjmrh. í fullri alvöru að hann taki þessa ábendingu til athugunar og komist að þeirri niðurstöðu að falla frá skerðingunni á Atvinnuleysistryggingasjóði.

Ég mun, virðulegi forseti, fara nánar yfir mál þetta allt þegar kemur til 2. og 3. umr. og þegar forsendur liggja fyrir. Eins og ég sagði áðan er plaggið býsna marklítið eins og nú er. En ég bendi á að lokum að samkvæmt orðum fjmrh. áðan gerir hann ráð fyrir að taka ekki 30, ekki 40, ekki 50 og ekki 55% af lífeyrissjóðunum á næsta ári heldur 85%. Nú mega lífeyrissjóðirnir hrósa happi að eiga eitthvað eftir til að borga ellilífeyri ef svo heldur fram sem horfir. Það hefur aldrei verið gengið eins nærri lífeyrissjóðunum og ætlunin er að gera nú og mun ég einnig áskilja mér rétt til að fjalla nánar um það við 2. og 3. umr. málsins, virðulegi forseti.