18.12.1986
Neðri deild: 29. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2008 í B-deild Alþingistíðinda. (1961)
88. mál, álagning tímabundinna skatta og gjalda 1987
Guðrún Agnarsdóttir:
Herra forseti. Ég á áheyrnaraðild að hv. fjh.- og viðskn. og vil segja nokkur orð hér um afstöðu Kvennalistans til þessa frv.
Hvað varðar I. kafla frv. erum við hlynntar því sem þar kemur fram, en teljum að skatturinn mætti vera hærri. Þess vegna viljum við styðja brtt. hv. 3. þm. Reykv. Þessi ríkisstjórn hefur haft undurnæman skilning á og borið umhyggju fyrir þörfum verslunarinnar á stjórnartíð sinni sem hefur dafnað vel í því góðæri og miklu neyslu sem hér hefur ríkt undanfarið. Því er eðlilegt að álykta að verslunin sé aflögufær til samneyslunnar í þjóðfélaginu og þoli meiri álagningu á tekjur sínar en hér er lagt til.
II. kaflinn fjallar um húsnæðisgjald, en það var eins og áður hefur komið fram eitt þeirra atriða sem stjórnarandstaða og stjórn gerðu samkomulag um vegna húsnæðismála á vordögum 1985. Þeirri 1% aukningu á söluskatti sem þar var tekin upp var ætlað að mæta vanda þeirra sem lent höfðu í hinu margumrædda misgengi lánskjara og launa sem ríkisstjórnin skóp mönnum á haustinu 1983. Afrakstur þessa gjalds rann aldrei óskiptur til þeirra aðila sein þannig höfðu verið meðhöndlaðir og er heldur ekki ætlað að gera það nú. Við munum ekki samþykkja þetta gjald áfram nema því sé varið eins og upphaflega var ætlað og þess vegna getum við stutt brtt. frá hv. 3. þm. Reykn.
Í IV. kafla frv. er fjallað um jöfnunarálag tolla á hús og húshluta sem ætlað er að rétta hlut innlendrar húsagerðar gagnvart aukinni samkeppni erlendis frá. Þessu erum við mjög samþykkar og áttum reyndar frumkvæði að flutningi till. til þál. um sérstakar verndunaraðgerðir fyrir innlendan húsaiðnað.